Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Ljóðaflóð – Ljóðasamkeppni grunnskólanema

4. nóvember 2024

Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember næstkomandi efnir Miðstöð menntunar til ljóðasamkeppni grunnskólanema, Ljóðaflóð, í samvinnu við KrakkaRúv. Við hvetjum nemendur til að virkja sköpunarkraftinn og senda inn ljóð á fjölbreyttu formi. Það geta verið bundin ljóð og óbundin, ferskeytlur, limrur, hækur, tönkur, myndljóð o.fl., sannkallað ljóðaflóð!

Ljóðaflóð

Dómnefnd velur ljóð á yngsta stigi, mið- og unglingastigi og fá vinningshafar afhent bókaverðlaun og viðurkenningarskjal. Úrval ljóða verður einnig birt á vefsíðu MMS. Úrslit keppninnar verða tilkynnt í janúar 2025, bæði á vefmiðlum MMS og á KrakkaRúv þar sem vinningsljóðin verða flutt.

Við hvetjum kennara til að undirbúa nemendur til þátttöku; lesa ljóð og ræða upplifun, innihald og mismunandi ljóðform. Á Ritunarvefnum er margs konar fróðleikur um ljóð ásamt skemmtilegum fræðslu- og hvatningarmyndböndum um skapandi skrif. Á safnvefnum Dagur íslenskrar tungu má nálgast stuttar og hnitmiðaðar bragfræðileiðbeiningar til kennara og einnig bendum við á bækurnar Bragfræði og Limrur fyrir unglingastig grunnskóla.

Nemendur geta annaðhvort samið sitt eigið ljóð eða haft samvinnu við aðra. Þá væri t.d. upplagt að bekkurinn skoðaði í sameiningu þau ljóð sem senda á í keppnina en vanda þarf til verka hvað varðar innihald, frágang og uppsetningu. Umfjöllunarefni ljóðanna er frjálst, þau geta verið um allt það sem brennur á krökkunum.

Skilafrestur er til og með 20. desember 2024.

Mikilvægt er að merkja ljóðin með nafni höfundar, bekk og skóla. Senda má ljóðin í keppnina rafrænt á netfangið elinlilja@midstodmenntunar.is eða með bréfpósti:

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Ljóðaflóð
B.t. Elínar Lilju Jónasdóttur
Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280