Ljóðaflóð – gefum sköpunarkraftinum lausan tauminn!
10. nóvember 2026
Hvað gerist þegar hugmyndir, orð og ímyndunarafl fá að leika lausum hala? Það gæti orðið sannkallað ljóðaflóð!

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, í samvinnu við KrakkaRÚV, efnir nú enn á ný til ljóðasamkeppninnar Ljóðaflóðs og býður öllum grunnskólanemum að taka þátt.
Ljóð geta verið fyndin, falleg, furðuleg, sorgleg eða spennandi. Þau geta fjallað um stórar spurningar eða lítil augnablik, hversdagslega hluti eða ævintýralega atburði. Umfjöllunarefnið er frjálst og formið sömuleiðis. Nemendur geta samið bundin eða óbundin ljóð, ferskeytlur, limrur, hækur, tönkur eða myndljóð. Allt er leyfilegt svo lengi sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín!
Verðlaun og skilafrestur
Dómnefnd velur vinningsljóð á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi og hljóta höfundar ljóðanna bókaverðlaun og viðurkenningarskjöl. Úrval annarra ljóða sem berast verður einnig birt á vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og vinningsljóðin verða flutt á KrakkaRÚV þegar úrslit verða kynnt í janúar 2027.
Skilafrestur er til og með 11. desember 2026.
Merkja þarf ljóðin með nafni höfundar, bekk og skóla. Ljóðunum má skila rafrænt á netfangið ljodaflod@mms.is eða senda í bréfpósti:
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Ljóðaflóð
Borgartúni 25
105 Reykjavík
Hvetjum börnin til dáða
Kennarar og foreldrar geta gegnt mikilvægu hlutverki við að vekja áhuga barna á ljóðum og hvetja þau til að prófa sig áfram með tungumálið. Tilvalið er að lesa ljóð saman, leika sér með orð og ræða hvernig hægt er að tjá hugsanir, tilfinningar og hugmyndir á ólíkan hátt.
Á Ritunarvefnum er að finna fjölbreyttan fróðleik um ljóðagerð ásamt fræðslu- og hvatningarmyndböndum um skapandi skrif. Einnig má nýta bragfræðileiðbeiningar og námsefnið Bragfræði og Limrur fyrir unglingastig grunnskóla.
Nemendur geta samið ljóð upp á eigin spýtur eða í samvinnu við aðra. Mikilvægt er að vanda til verka og huga að innihaldi, frágangi og uppsetningu.