Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Kynning á námsefni um fjölbreytileika og mannréttindi

9. mars 2026

ÖBÍ réttindasamtök hefur birt myndbandskynningu á barnabókinni PóGó og prumpið sem bjargaði heiminum og kennsluleiðbeiningum sem fylgja efninu. Verkefnið er samstarf ÖBÍ og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Í kynningunni ræða Bergrún Íris Sævarsdóttir, höfundur bókarinnar, og Hjalti Halldórsson, höfundur kennsluleiðbeininga, um markmið verkefnisins, tilurð efnisins og hvernig hægt er að nýta það í kennslu.

Hægt er að horfa á kynninguna hér:

Bók um fjölbreytileika og mannréttindi

Bókin segir frá geimverunni PóGó sem kynnist börnum með ólíkar fatlanir. Í gegnum skopleg og umhugsunarverð ævintýri fá nemendur innsýn í fjölbreytileika mannlífsins.

Efnið er ætlað að styðja við umræður í skólastarfi um:

  • fjölbreytileika

  • fötlun

  • mannréttindi

  • gagnrýna hugsun

Nemendur eru hvattir til að velta fyrir sér fordómum og staðalmyndum og ræða mikilvægi samkenndar og virðingar.

Bók, hljóðbók og kennsluleiðbeiningar

Á námsefnisvef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu er hægt að nálgast:

  • rafbókarútgáfu PóGó og prumpið sem bjargaði heiminum

  • hljóðbók

  • myndlýsingar

  • kennsluleiðbeiningar

Efnið er aðgengilegt hér

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280