Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Kennarar nýta gervigreind til að mæta ólíkum þörfum nemenda 

11. nóvember 2026

Kennarar sem tóku þátt í þróunarverkefni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) nýttu gervigreind meðal annars til að útbúa lestexta á mismunandi þyngdarstigum og aðlaga námsefni að ólíkum þörfum nemenda. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands, sem unnin var að beiðni MMS. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvernig gervigreind getur stutt faglegt starf kennara, en draga jafnframt fram mikilvægan lærdóm um fræðslu, stuðning og umgjörð slíkrar notkunar.

Menntavísindastofnun Háskóla Íslands hefur birt skýrsluna Notkun gervigreindar í kennarastarfi, þar sem lagt er mat á þróunarverkefni sem MMS stóð fyrir í samstarfi við Kennarasamband Íslands (KÍ) og tæknifyrirtækin Google og Anthropic.

Verkefnið hófst haustið 2025 og fólst í því að kennurum á grunn- og framhaldsskólastigi var boðinn aðgangur að gervigreindartólunum Gemini og Claude ásamt fræðslu og stuðningi. Markmiðið var að kanna hvort og hvernig gervigreind gæti nýst í daglegu starfi kennara, einkum við undirbúning kennslu.

Námsefni lagað að ólíkum þörfum

Ein af áhugaverðum niðurstöðum skýrslunnar er hvernig kennarar nýttu gervigreind til að þróa og aðlaga námsefni.

Grunnskólakennarar lýstu meðal annars hvernig þeir nýttu gervigreind til að semja lestexta á mismunandi þyngdarstigum, einfalda texta fyrir nemendur með íslensku sem annað mál eða málþroskaröskun og útbúa fjölbreytt verkefni.

Á framhaldsskólastigi komu fram dæmi um gerð gagnvirkra verkefna, kennsluvefja, hermilíkana og annarra stafrænna kennsluverkfæra. Þessi dæmi sýna hvernig gervigreind getur stutt kennara við að útfæra kennsluhugmyndir og aðlaga námsefni að fjölbreyttum nemendahópi.

Aukið svigrúm til að þróa og vanda kennslu

Niðurstöður könnunarinnar sýna að kennarar nýttu gervigreindartólin einkum við undirbúning kennslu, meðal annars við hugmyndavinnu, verkefnagerð og skipulag.

Í síðari könnuninni töldu 72% svarenda á grunnskólastigi og 88% á framhaldsskólastigi, sem höfðu notað tólin við undirbúning kennslu, að þau hefðu nýst frekar eða mjög vel.

Kennarar lýstu jafnframt hvernig tæknin hjálpaði þeim að útfæra hugmyndir, þróa kennsluefni og vinna með verkefni á fjölbreyttari hátt.

„Það sem vekur sérstaka athygli í niðurstöðunum er hvernig gervigreind getur stutt kennara við að mæta ólíkum þörfum nemenda og skapað þeim aukið svigrúm til að þróa og vanda kennslu. Kennarar sinna fjölbreyttu og krefjandi starfi og mikilvægt er að ný tækni nýtist þeim sem stuðningur við það faglega starf sem þeir sinna,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri MMS.

Mikill áhugi en einnig mikilvægur lærdómur

Áhugi svarenda á áframhaldandi notkun gervigreindar var mikill. Í lok verkefnisins lýstu 86% svarenda á grunnskólastigi og 87% á framhaldsskólastigi frekar eða mjög miklum áhuga á áframhaldandi aðgangi að gervigreindartólunum.

Niðurstöðurnar varpa jafnframt ljósi á mikilvægi fræðslu og stuðnings við notkun gervigreindar í kennarastarfi. Kennarar lögðu meðal annars áherslu á hagnýta fræðslu á íslensku, dæmi úr kennslu og tækifæri til að miðla reynslu sín á milli. Reynsla af framkvæmd verkefnisins sýndi einnig að aðgengi að tólum og stuðningi var mismunandi eftir skólastigum.

Skýrslan undirstrikar þannig að samhliða aðgangi að gervigreindartólum sé mikilvægt að huga að stuðningi sem tekur mið af þörfum og aðstæðum kennara. Einnig er bent á mikilvægi fræðslu um ábyrga notkun gervigreindar, meðal annars um sannprófun upplýsinga, gagnrýnið mat á niðurstöðum og vernd persónuupplýsinga.

Niðurstöður nýtast við áframhaldandi stefnumótun

Þegar þróunarverkefnið fór af stað var lögð áhersla á að reynsla íslenskra kennara yrði leiðarljós við mat á möguleikum gervigreindar í skólastarfi. Niðurstöður skýrslunnar eru mikilvægt innlegg í áframhaldandi umræðu og stefnumótun um nýtingu gervigreindar í íslensku menntakerfi, meðal annars um fræðslu, stuðning við kennara og umgjörð um ábyrga notkun.
Skýrslan byggir á tveimur könnunum sem lagðar voru fyrir þátttakendur í febrúar og mars annars vegar og maí og júní 2026 hins vegar. Niðurstöðurnar endurspegla reynslu og sjálfsmat þeirra kennara sem svöruðu og eru ekki ætlaðar til alhæfinga um alla kennara landsins.

Lesa skýrsluna Notkun gervigreindar í kennarastarfi

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280