Íslensku menntaverðlaunin 2026 veitt á Bessastöðum
12. nóvember 2026
Íslensku menntaverðlaunin 2026 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 10. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Verðlaunin ná til leik-, grunn- og framhaldsskólastigs, sem og til listnáms og félags- og tómstundastarfs.

A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
Verðlaunin í ár fær Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem hefur það að markmiði að þroska með nemendum hæfni sem gerir þeim fært að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs.
Starfsbrautin er ætluð nemendum með fötlun eða sérstaka námserfiðleika og markvisst er unnið að því að auka sjálfstæði þeirra og sjálfsábyrgð. Námið er sniðið að hverjum nemanda og áhersla lögð á að hlusta á óskir þeirra. Vettvangs- og fræðsluferðir, útinám, heimsóknir, ratleikir, verkleg viðfangsefni, sköpun, hreyfing, hönnun og lausnaleit eru dæmi um þær fjölbreyttu kennsluaðferðir sem áhersla er lögð á.

B. Framúrskarandi kennari
Verðlaunin í ár hlýtur Sandra Ómarsdóttir, kennari í Seljaskóla í Reykjavík, fyrir framúrskarandi sviðslistakennslu.
Á hverju ári setur Sandra upp metnaðarfullar og vandaðar leiksýningar með nemendum í Seljaskóla sem hafa vakið mikla og verðskuldaða athygli. Sýningarnar þykja einkennast af faglegum vinnubrögðum, ríkri listrænni sýn og vandaðri útfærslu þar sem hvert smáatriði er úthugsað.
Í umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefningu hennar sagði meðal annars
Sandra á stóran þátt í að þjappa saman árgöngum með því að vinna með þeim stór samvinnuverkefni sem allir eru stoltir af og hafa þar með gífurlega jákvæð áhrif á skólabrag. Henni tekst að virkja alla nemendur hvernig sem námsleg og félagsleg staða þeirra er. Með uppsetningum hennar á þessum frábæru sýningum þjappar hún líka saman foreldrahópnum og myndar jákvæð og skemmtileg tengsl á milli starfsmanna, nemenda og foreldra.
C. Framúrskarandi þróunarverkefni
Verðlaunin í ár eru veitt verkefninu Söngvavori sem er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla. Verkefnið á rætur að rekja til samvinnu Tónskóla Sigursveins við leikskóla í Reykjavík sem hófst árið 2010. Síðast liðið vor náði verkefnið til ríflega 3000 barna í 140 leikskólum og 15 tónlistarskólum víða um land. Á hverju ári er valið íslenskt tónskáld og verk þess útsett sérstaklega með raddsvið leikskólabarna og getu ungra hljóðfæraleikara í huga.
Leikskólabörnin heimsækja tónlistarskólana og æfa með nemendum á aldrinum 10–16 ára sem leika undir á hljóðfæri. Verkefninu lýkur með tónleikum í menningarhúsum hvers sveitarfélags. Reynsla af verkefninu og rannsóknir sýna að upplifunin af því að stíga á svið og flytja tónlist fyrir framan fjölskyldur og nærsamfélag hefur mótandi áhrif á sjálfsmynd og félagsfærni barna.
D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Í ár koma verðlaunin í hlut Verkmenntaskólans á Akureyri fyrir sjálfbæra kennslustofu, nýsköpunarverkefni sem er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt. Í skólanum hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð fyrir nemendur til að fást við margs konar verkefni sem tengjast sjálfbærri orkunotkun. Markmiðið er að útskrifaðir nemendur hafi þekkingu til að leysa orkumál samtímans á sjálfbæran hátt.
Í umsögn um verkefnið sem fylgdi tillögu að tilnefningu sagði meðal annars:
VMA á skilið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar vegna frumkvöðlastarfs síns á sviði sjálfbærni, nýsköpunar og hagnýtrar kennslu. Með þróun sjálfbærrar kennnslustofu hefur skólinn skapað lifandi lærdómssamfélag þar sem nemendur fá tækifæri til að tengja nám sitt við raunveruleg verkefni og samfélagsáskoranir samtímans. Verkefnið sýnir skýra framtíðarsýn um hvernig iðn- og verkmenntun getur verið leiðandi afl í loftslags- og orkumálum.
E. Hvatningarverðlaun
Hvatningarverðlaun Íslensku Menntaverðlaunanna eru veitt einstaklingi, hópi eða samtökum sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Í ár hlýtur þessi verðlaun Opni Leikskóli MEMMM fyrir mikilvægt starf í þágu barnafjölskyldna með ung börn.
Opni leikskólinn býður barnafjölskyldum aðstöðu til að hittast; leika, syngja og skapa í örvandi umhverfi. Starfsemin mætir þörfum fjölskyldna sem bíða eftir leikskólaþjónustu og skapar börnum og foreldrum tækifæri til samveru, leiks og fræðslu. Á síðasta skólári voru heimsóknir í skólann um 5.200.
Skólinn er rekinn af óhagnaðardrifnum félagasamtökum í samstarfi við Reykjavíkurborg, Hafnarfjörð og Vinnumálastofnun og þátttaka í viðburðum er gjaldfrjáls. Í boði er fjölbreytt dagskrá; listasmiðjur, samverustundir, söngstundir, málörvun og lestrarstundir. Auk samverustunda er reglulega boðið upp á fræðslu um málefni uppeldis og barna. Opni leikskóli MEMMM styður sérstaklega við erlendar fjölskyldur en starfsemin er inngildandi vettvangur fyrir fjölskyldur með annan menningar- og tungumálabakgrunn.
Að menntaverðlaununum standa embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Samtök iðnaðarins.
Mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið og Samtök iðnaðarins fjármagna verkefnið.
Athygli er vakin á því að þegar er hægt að senda inn tillögur að tilnefningum fyrir næsta ár, sjá á http://www.skolathroun.is þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um verðlaunahafa og tilnefningar.