Íslensk námsgögn – hvað er til?
11. ágúst 2026
Hvaða íslensku námsgögn standa kennurum til boða í dag og hvernig viljum við sjá þau þróast til framtíðar? Fimmtudaginn 13. ágúst verður íslenskt námsefni í sviðsljósinu á viðburði í Menntaskólanum við Hamrahlíð þar sem kennarar, útgefendur, þróunaraðilar og annað fagfólk í menntamálum koma saman.

Gott og fjölbreytt námsefni á íslensku er mikilvægur grunnur að öflugu skólastarfi. Á undanförnum árum hefur mikil umræða átt sér stað um framboð, þróun og aðgengi að íslenskum námsgögnum. Viðburðurinn er vettvangur til að varpa ljósi á það sem þegar er í boði, kynna nýjungar og ræða hvernig íslensk námsgögn geta þróast áfram.
Gestir fá tækifæri til að kynna sér fjölbreytt íslenskt námsefni og heyra frá þeim sem vinna að útgáfu og þróun námsgagna. Jafnframt verða flutt stutt erindi um stöðu og framtíð námsgagna á Íslandi.
Á dagskrá
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, opnar viðburðinn. Tryggvi Hjaltason frá Andvara fjallar um ný verkfæri í verkfærakassanum og Páll Ásgeir Torfason frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu kynnir Minni miðstöð og nýja námsefnissíðu.
Einnig verða erindi frá Hagþenki og Iðnú útgáfu. Íris E. Gísladóttir, formaður Þróunarsjóðs námsgagna og IEI, flytur lokaorð.
Viðburðurinn fer fram fimmtudaginn 13. ágúst kl. 16–18 í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Léttar veitingar verða í dagskrárlok.
Við hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu verðum á staðnum með fjölbreytt námsgögn til sýnis og hlökkum til að hitta gesti. Endilega lítið við hjá okkur, kynnið ykkur efnið og spjallið við okkur um námsgögn, nýjungar og það sem er fram undan.
Frekari upplýsingar má finna hér á facebook.