Innritun í framhaldsskóla hafin – fer nú fram í gegnum Ísland.is
28. apríl 2025
Nú eru stór og spennandi tímamót fram undan í lífi 10. bekkinga landsins því innritun í framhaldsskóla fyrir skólaárið 2025–2026 er hafin. Þau nýmæli eru við innritunarferlið í ár að það fer nú alfarið fram í gegnum vefinn Ísland.is og því þurfa umsækjendur eða forsjáraðilar að vera með rafræn skilríki.

Nýja innritunargáttin var þróuð í nánu samstarfi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Stafræns Íslands. Markmiðið er að einfalda ferlið, bæta þjónustu við umsækjendur og tryggja örugg samskipti með notkun rafrænnar auðkenningar. Guðrún Helga Ástríðardóttir er sérfræðingur í skólaþjónustu framhaldsskóla hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Hún er í skýjunum með þessa nýjung: „Það er mjög mikilvægt að umsóknarferlið gangi snurðulaust fyrir sig, enda eru þetta sannarlega stór tímamót í lífi hvers einstaklings. Það er því gleðiefni hversu hratt og vel þróun þessarar innritunarlausnar gekk fyrir sig,“ segir Guðrún Helga og ber samstarfinu við Stafrænt Ísland vel söguna.
Foreldrar, forráðamenn og nemendur eru hvattir til að kynna sér ferlið vel og sækja um innan tilgreinds umsóknarfrests. Nánari upplýsingar um innritun og frekari leiðbeiningar má finna hér.