Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hvert tungumál opnar nýjar dyr

23. september 2026

Evrópski tungumáladagurinn er haldinn 26. september ár hvert. Dagurinn er tilefni til að fagna fjöltyngi, vekja áhuga á tungumálanámi og minna á mikilvægi tungumála fyrir samskipti og menningarskilning.

Yfir 6.000 tungumál eru töluð í heiminum og á bak við hvert þeirra er fjölbreytt menning, saga og reynsla. Með því að læra tungumál fáum við ekki aðeins ný verkfæri til samskipta heldur aukum við jafnframt skilning okkar á öðrum samfélögum og menningarheimum.

Víða nýta kennarar og skólar Evrópska tungumáladaginn til að brjóta upp hefðbundið skólastarf og vinna með tungumál, fjöltyngi og menningu á fjölbreyttan hátt.

Námsefni fyrir tungumáladaginn

Á námsefnisvef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu má finna fjölbreytt efni sem hægt er að nýta í tengslum við daginn.

Danska: Tempo

Enska: Yes we can og Next Up!

Íslenska: Lúkas lesmús, Að heiman og heim – París og Viðsnúningur

Fjöltyngi og menning á MEMM

Á MEMM – Menntun, móttaka, menning má finna hugmyndir, fræðslu og hagnýt verkefni fyrir starfsfólk skóla og frístundastarfs. Efnið styður meðal annars við fjöltyngi, menningarnæmi og móttöku barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Þar má meðal annars finna Töfrakistu tungumálanna, þar sem tungumál og fjöltyngi eru gerð sýnileg með fjölbreyttum hætti.

Hugmyndir að verkefnum

Í tilefni dagsins hefur Miðstöð menntunar og skólaþjónustu einnig tekið saman hugmyndir að verkefnum sem hægt er að nýta í skólastarfi. Verkefnin bjóða upp á fjölbreyttar leiðir til að vinna með tungumál og vekja athygli nemenda á þeim tungumálum sem töluð eru í nærumhverfi þeirra og víðar.

Einnig má finna verkefni og annað efni í tengslum við Evrópska tungumáladaginn hjá Tungumálamiðstöð Evrópu.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280