Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Gerð stuðningsefnis við hæfniviðmið í íslensku sem öðru tungumáli í aðalnámskrá grunnskóla

8. október 2026

Við auglýsum eftir liðsinni við gerð stuðningsefnis fyrir hæfniviðmið í íslensku sem öðru tungumáli í aðalnámskrá grunnskóla. Um tímabundið og afmarkað verkefni er að ræða sem varað gæti í um 4 vikur, frá lokum október til nóvember 2026.

Við leitum að áhugasömu fólki sem: 

  • hefur góða þekkingu á aðalnámskrá grunnskóla, hæfniviðmiðum ÍSAT og fylgiriti með kafla 19.3: Hæfnisvið og hæfnirammar í íslensku sem öðru tungumáli.  

  • hefur mjög góða innsýn í skipulagningu náms og kennslu í íslensku sem öðru tungumáli 

  • hefur a.m.k. 2 ára reynslu af kennslu íslensku sem annars tungumáls 

  • hefur þekkingu og kennslureynslu á yngsta stigi, miðstigi og/eða unglingastigi grunnskólans í ÍSAT 

  • býr yfir góðri samskiptahæfni og á gott með að vinna í hóp 

  • hefur gott vald á íslensku 

Verkefnið er án staðsetningar og hvetjum við fólk alls staðar af landinu til að sækja um. Leitast verður við að velja í verkefnahóp fólk með sem breiðasta þekkingu, reynslu og aðkomu að íslensku sem annað tungumál.  

Greitt er fyrir verkefnið samkvæmt taxta Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.  

Umsækjendur fylli vinsamlegast út form í tengli hér.  

Umsóknum er hægt að skila inn til miðnættis  19. október. 

Fyrirspurnir vegna verkefnisins sendist á erla@midstodmenntunar.is 

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280