Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Forstjóri MMS hlýtur Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026

7. maí 2026

Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, hefur hlotið Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026 í flokknum „Einstaklingur í opinberu starfi“. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi forystu í stafrænni umbreytingu íslenska menntakerfisins á undanförnum árum.

Í umsögn dómnefndar kemur fram að verkefnið beri skýr merki góðrar opinberrar nýsköpunar: skýra þörf, raunverulegan ávinning fyrir notendur og fordæmi sem önnur svið hins opinbera geti byggt á.

Stafræn umbreyting menntakerfisins hefur verið eitt af stóru verkefnum MMS undanfarin ár. Hún hefur meðal annars snúist um að þróa betri stafræna innviði, einfalda aðgengi að þjónustu og upplýsingum, styðja betur við skólasamfélagið og skapa traustari grundvöll fyrir þróun náms, kennslu og skólaþjónustu, allt með það að markmiði að efla gæði kennslu og bæta námsárangur.

„Ég tek við þessari viðurkenningu með miklu þakklæti og auðmýkt. Hún er fyrst og fremst staðfesting á því hvað hægt er að gera þegar fólk kemur saman með skýra sýn, traust og vilja til að bæta þjónustu við börn, kennara og skólasamfélagið. Ég er óendanlega stolt af starfsfólki MMS og öllum þeim sem hafa tekið þátt í þessari vegferð með okkur,“ segir Þórdís.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hlaut einnig tvær tilnefningar í flokki stofnana, sem undirstrikar breiddina í þeirri nýsköpunar- og þróunarvinnu sem hefur átt sér stað innan stofnunarinnar á undanförnum árum.

„Þessi viðurkenning hvetur okkur til að halda áfram að hugsa stórt fyrir börn og menntun á Íslandi. Við viljum nýta tækni, gögn og gott samstarf til að styðja betur við skólasamfélagið og skapa börnum sem best tækifæri til að læra, vaxa og blómstra,“ segir Þórdís.

Verðlaunin voru afhent á Nýsköpunardegi hins opinbera 6. maí 2026.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280