Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Fjölbreytt innsýn í námsgagnagerð á vel sóttu örnámskeiði

2. febrúar 2026

Um 150 manns sóttu örnámskeiðið Viltu verða námsgagnahöfundur, sem haldið var hjá okkur í Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, bæði á staðnum og í streymi. Námskeiðið var ætlað þeim sem hafa áhuga á að stíga sín fyrstu skref í námsgagnagerð eða vilja kynna sér ferlið nánar.

Samstarfsverkefni um þróun námsgagna

Örnámskeiðið var samstarfsverkefni Rannís (Þróunarsjóðs námsgagna), Forlagsins, Hagþenkis, Iðnú, Samtaka menntatæknifyrirtækja og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Frá hugmynd að útgáfu

Dagskráin var fjölbreytt og fjallaði um ólíkar hliðar námsgagnagerðar, allt frá því hvernig hugmynd kviknar að útgáfu og dreifingu námsefnis. Fjallað var um faglega framsetningu, ólíkar leiðir í útgáfu og þá þætti sem höfundar þurfa að hafa í huga þegar þeir hefja vinnu við námsefni.

Hægt er að lesa sér til nánar um dagskrána á heimasíðu Rannís.

Reynslusögur og möguleikar fyrir höfunda

Á námskeiðinu var einnig fjallað um reynslu höfunda sem hafa komið námsefni sínu úr hugmyndastigi og til notenda. Að lokum var rætt um möguleika í útgáfu og samstarf milli höfunda, stofnana og útgefenda.

Fundarstjóri viðburðarins var Gunnar Hersveinn, rithöfundur.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280