EKKO-teymi FSu hlýtur hvatningarverðlaun á degi gegn einelti
9. nóvember 2026
EKKO-teymi Fjölbrautaskóla Suðurlands hlaut hvatningarverðlaun á Degi gegn einelti 2026 fyrir metnaðarfullt og faglegt forvarnastarf gegn einelti, áreitni og ofbeldi. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hlíðaskóla í Reykjavík föstudaginn 6. nóvember.

Forseti Íslands Halla Tómasdóttir ásamt vinningshöfunum Höllu Dröfn Jónsdóttur, Agnesi Ósk Snorradóttur, Önnu Fríðu Bjarnadóttur og Bjarneyju Sif Ægisdóttur.
Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla þar sem nemendur, starfsfólk og gestir komu saman til að vekja athygli á mikilvægi jákvæðra samskipta, virðingar og sameiginlegrar ábyrgðar á að fyrirbyggja einelti.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, flutti ávarp þar sem hún lagði áherslu á að öll ættum við að geta verið við sjálf og fundið að okkur væri tekið eins og við erum. Hún minnti á að handan við hvern skjá væri manneskja með tilfinningar, vonir og drauma og að við hefðum alltaf val um hvernig við kæmum fram hvert við annað. Við ættum að velja að sýna góðvild og virðingu.
Forseti hvatti jafnframt til hugrekkis í daglegum samskiptum. Hugrakkir leiðtogar væru ekki endilega þeir sem hefðu hæst heldur einnig þau sem byðu nýjum nemanda með í leik, tækju ekki þátt í stríðni og réttu öðrum hjálparhönd þegar á reyndi.
EKKO-teymið fyrirmynd í forvarnastarfi
Hvatningarverðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi starf á sviði forvarna gegn einelti og er markmið þeirra að vekja athygli á verkefnum sem stuðla að jákvæðum samskiptum, vellíðan og öruggu skólaumhverfi.
EKKO-teymi Fjölbrautaskóla Suðurlands skipa þær Halla Dröfn Jónsdóttir, Agnes Ósk Snorradóttir, Anna Fríða Bjarnadóttir og Bjarney Sif Ægisdóttir.
Í mati dómnefndar kemur fram að EKKO-teymið hafi sýnt metnaðarfullt og faglegt frumkvæði í uppbyggingu markvissra forvarna gegn einelti, áreitni og ofbeldi.
Á undanförnum tveimur árum hefur teymið unnið að því að skapa skýra verkferla, efla þekkingu starfsfólks og tryggja nemendum aðgengilegar leiðir til að leita aðstoðar og stuðnings.
Dómnefnd vekur sérstaka athygli á því hvernig tekist hefur að virkja bæði nemendur og starfsfólk til þátttöku og skapa sameiginlega ábyrgð á jákvæðum samskiptum og öruggu skólaumhverfi. Verkefnið Jákvæður nóvember og útgáfa EKKO-upplýsingabæklings eru nefnd sem dæmi um skapandi nálgun þar sem rödd nemenda fær raunverulegt vægi.
Þá er lögð áhersla á snemmtæk inngrip, samræmd viðbrögð og eftirfylgni mála. Að mati dómnefndar einkennist starfið af heildstæðri nálgun þar sem forvarnir, fræðsla og stuðningur fléttast saman í daglegu skólastarfi.
Í niðurstöðu dómnefndar segir:
„Styrkur verkefnisins er að forvarnir gegn einelti eru gerðar að sameiginlegu viðfangsefni alls skólasamfélagsins.“
Dómnefnd telur að EKKO-teymið hafi lagt mikilvægan grunn að öflugri forvarnamenningu og þróað verklag og fræðsluefni sem geti orðið öðrum skólum fyrirmynd.
Við móttöku verðlaunanna lögðu fulltrúar teymisins áherslu á að ein besta forvörnin sé að gera meira af því sem við viljum sjá í skólasamfélaginu: sýna virðingu, stuðla að jákvæðni og láta sig aðra varða.
Þær undirstrikuðu jafnframt að forvarnastarf væri sameiginlegt verkefni alls skólasamfélagsins en ekki eingöngu EKKO-teymisins. Þá þökkuðu þær nemendum sérstaklega fyrir þátttökuna og bentu á að án hugmynda þeirra og athugasemda hefði verkefnið litið allt öðruvísi út.
Mikilvægt að hlusta á börn og ungmenni
Frosti Þorvaldsson, nemandi í Hlíðaskóla, flutti einnig ávarp þar sem hann lagði áherslu á hversu mikilvægt væri fyrir börn og ungmenni að finna fyrir stuðningi og skilningi starfsfólks.
Frosti nefndi sérstaklega Gunnlaug Víði Guðmundsson, Gulla í Gleðibankanum, sem hlaut hvatningarverðlaunin á degi gegn einelti árið 2025 fyrir framúrskarandi starf með unglingum. Gulli hefur um árabil lagt áherslu á að efla sjálfsmynd, líðan og félagsleg tengsl ungmenna.
Í ávarpi sínu ræddi Frosti einnig mikilvægi þess hvernig fullorðnir nálgast börn og ungmenni þegar upp koma erfið samskiptamál. Hann benti á að skammir skiluðu litlum árangri og að mun mikilvægara væri að ræða málin í rólegheitum, af virðingu og á jafningjagrundvelli.
Bergdís Wilson, formaður fagráðs eineltismála, tók undir mikilvægi þess að byggja upp traust og skapa umhverfi þar sem öll börn upplifa að þau tilheyri. Hún minnti á ábyrgð fullorðinna á að vera góðar fyrirmyndir, hlusta á börn og grípa snemma inn í erfið samskipti. Þá vakti hún athygli á verkfærakistu á Stopp ofbeldi, vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, þar sem finna má fræðslu og verkfæri fyrir starfsfólk skóla og frístundastarfs.
Kærleikslag í tilefni dags gegn einelti
Tónlist skipaði stóran sess í hátíðardagskránni. Í tilefni dags gegn einelti hafði verið samið sérstakt Kærleikslag sem Gísella Hannesdóttir flutti ásamt nemendum í 9. bekk Hlíðaskóla.
Með laginu er athygli beint að kærleika, vináttu og mikilvægi góðra samskipta. Það er jafnframt hugsað sem hvatning til barna, ungmenna og fullorðinna um að sýna hvert öðru umhyggju og stuðla að jákvæðum samskiptum í daglegu lífi.
Kærleikslagið er ekki aðeins hugsað til flutnings í tilefni dagsins heldur einnig sem efniviður fyrir skóla til að vinna áfram með skilaboð dagsins. Texti lagsins, hlekkir á lagið og tengt námsefni verða aðgengileg á vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Með efninu gefst skólum tækifæri til að nýta tónlistina sem útgangspunkt fyrir samtöl og verkefni um vináttu, virðingu, samkennd og samskipti.
Einnig hefur verið útbúið myndband við lagið í samstarfi höfundar við KrakkaRÚV sem birt verður á vef KrakkaRÚV. Með því verður hægt að miðla laginu og skilaboðum þess enn víðar til barna og fjölskyldna um land allt.
Nemendur í 7. bekk Hlíðaskóla fluttu einnig tónlistaratriði og lögðu þannig sitt af mörkum til hátíðlegrar dagskrár.
Verðlaunagripurinn er hönnun og gjöf frá listakonunni Sólveigu Hólm.
Solveig Holm · Málverk, keramík og listaverk
Sameiginleg ábyrgð á samfélagi án eineltis
Dagur gegn einelti hefur verið haldinn á Íslandi frá árinu 2011 og er mikilvægur vettvangur til að minna á sameiginlega ábyrgð samfélagsins á að fyrirbyggja einelti og stuðla að virðingu, vellíðan og góðum samskiptum.
Nánari upplýsingar um dag gegn einelti má finna á www.gegneinelti.is.