Býr námsefnishöfundur í þér?
26. október 2026
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu leitar að metnaðarfullum og hugmyndaríkum höfundi eða höfundum til að semja námsefni í íslensku sem annað tungumál fyrir unglinga. Efnið er ætlað nemendum sem eru komnir á seinni hluta annars hæfnistigs og nemendum á þriðja hæfnistigi.

Námsefnið verður unnið á grunni Aðalnámskrár grunnskóla. Áhersla verður lögð á fjölbreytt og skapandi efni sem höfðar til unglinga, tengist reynsluheimi þeirra og styður þá í að efla íslenskufærni sína í námi, samskiptum og daglegu lífi.
Við leitum að einstaklingum sem:
hafa háskólamenntun sem nýtist í verkefninu, til dæmis kennaramenntun eða menntun í íslensku, ritlist eða tungumálum,
hafa reynslu af kennslu íslensku sem annars tungumáls eða kennslu erlendra tungumála,
hafa góða færni í íslensku og textavinnu,
búa yfir skapandi hugsun, hugmyndaauðgi og innsýn í reynsluheim unglinga,
hafa menningarnæmi og þekkingu á fjölmenningarlegu skólastarfi,
eru liprir í samskiptum og tilbúnir til að vinna náið með ritstjóra og öðru fagfólki.
Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum, tungumálanámi, námsefnisgerð og Evrópska tungumálarammanum er kostur. Góð fagþekking, skapandi hugmyndir og áhugi á markhópnum skipta miklu máli. Ekki er nauðsynlegt að hafa áður samið námsefni.
Umsókn skal fylgja kynningarbréf með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og áhuga á verkefninu. Kostur er að þar komi einnig fram hugmyndir um nálgun og efnistök.
Umsóknarfrestur er til 13.11.2026. Umsóknir skulu berast á netfangið postur@midstodmenntunar.is, merktar Íslenska sem annað tungumál og nafni umsækjanda eða umsækjenda. Nánari upplýsingar veita Alda Áskelsdóttir, alda@midstodmenntunar.is og Þorbjörg Halldórsdóttir, thorbjorg@midstodmenntunar.is .