Allir nýnemar komnir með skólavist fyrir næsta skólaár - innritun í framhaldsskóla lokið
22. júní 2026
Allir nýnemar sem uppfylltu inntökuskilyrði fengu skólavist fyrir næsta skólaár. Um 97% fengu pláss í einum af þeim þremur skólum sem þeir völdu í umsókn sinni.

Innritun nýnema í framhaldsskóla fyrir skólaárið 2026–2027 er lokið. Alls fengu 5.152 nemendur úthlutað skólavist, sem er mesti fjöldi frá upphafi.
Í úthlutuninni í ár fengu langflestir nemendur pláss í skóla sem þeir höfðu sjálfir valið. Alls fengu 4.075 nemendur pláss í þeim skóla sem var þeirra fyrsta val, eða 79% nýnema. Þá fengu 627 nemendur annað val og 292 þriðja val. Samtals fengu því 4.994 nemendur, eða um 97%, skólavist í einum af þeim þremur skólum sem þeir völdu í umsókn sinni.
Aðrir 158 nemendur fengu pláss í framhaldsskóla þar sem laust pláss var í boði. Þannig tókst að tryggja öllum umsækjendum sem uppfylltu inntökuskilyrði skólavist fyrir næsta skólaár.
Mikil aðsókn í marga skóla
Aðsókn í framhaldsskóla var mikil í ár og í nokkrum tilvikum þurftu nemendur að hafa óvenju háar einkunnir til að komast inn í eftirsóttustu skólana og námsbrautirnar. Þar sem umsóknir voru fleiri en laus pláss réðust úthlutanir meðal annars af inntökuskilyrðum og þeim viðmiðum sem gilda um innritun í hverjum skóla.
Úthlutun eftir vali nemenda
Úthlutun | Fjöldi nemenda | Hlutfall |
Fengu fyrsta val | 4.075 | 79% |
Fengu annað val | 627 | 12% |
Fengu þriðja val | 292 | 6% |
Fengu pláss í öðrum skóla þar sem laust pláss var | 158 | 3% |
Samtals | 5.152 |
Umsóknir og innritun eftir skólum
Heildarfjölda umsókna í hvern skóla, ásamt fjölda innritaðra nemenda, má sjá í töflunni hér fyrir neðan.
Athugið að hver nemandi gat sótt um allt að þrjá skóla. Því er heildarfjöldi umsókna í skóla hærri en fjöldi nemenda sem fékk úthlutað skólavist.
Framhaldsskóli | 1. val | 2. val | 3. val | Samtals umsóknir í skóla | Innritaðir |
Borgarholtsskóli | 180 | 281 | 188 | 649 | 238 |
Fisktækniskóli Íslands | 1 | 5 | 0 | 6 | 1 |
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | 204 | 288 | 174 | 666 | 251 |
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | 341 | 513 | 281 | 1.135 | 227 |
Fjölbrautaskólinn við Ármúla | 87 | 181 | 128 | 396 | 238 |
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | 61 | 54 | 10 | 125 | 70 |
Fjölbrautaskóli Snæfellinga | 29 | 15 | 3 | 47 | 29 |
Fjölbrautaskóli Suðurlands | 244 | 86 | 24 | 354 | 267 |
Fjölbrautaskóli Suðurnesja | 293 | 43 | 18 | 354 | 313 |
Fjölbrautaskóli Vesturlands | 124 | 72 | 17 | 213 | 131 |
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði | 131 | 242 | 221 | 594 | 209 |
Framhaldsskólinn á Húsavík | 22 | 16 | 4 | 42 | 27 |
Framhaldsskólinn á Laugum | 28 | 36 | 6 | 70 | 29 |
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu | 13 | 2 | 2 | 17 | 14 |
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | 23 | 69 | 27 | 119 | 97 |
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | 46 | 9 | 1 | 56 | 46 |
Kvennaskólinn í Reykjavík | 424 | 527 | 156 | 1.107 | 243 |
Menntaskóli Borgarfjarðar | 36 | 65 | 6 | 107 | 37 |
Menntaskóli í tónlist | 27 | 14 | 18 | 59 | 20 |
Menntaskólinn á Akureyri | 249 | 180 | 20 | 449 | 223 |
Menntaskólinn að Laugarvatni | 87 | 89 | 11 | 187 | 54 |
Menntaskólinn á Egilsstöðum | 64 | 37 | 2 | 103 | 66 |
Menntaskólinn á Ísafirði | 72 | 8 | 4 | 84 | 76 |
Menntaskólinn á Tröllaskaga | 21 | 41 | 7 | 69 | 23 |
Menntaskólinn í Kópavogi | 247 | 379 | 282 | 908 | 277 |
Menntaskólinn í Reykjavík | 310 | 352 | 132 | 794 | 270 |
Menntaskólinn við Hamrahlíð | 342 | 257 | 198 | 797 | 272 |
Menntaskólinn við Sund | 146 | 221 | 250 | 617 | 229 |
Tækniskólinn | 451 | 443 | 175 | 1.069 | 477 |
Verkmenntaskóli Austurlands | 41 | 38 | 5 | 84 | 43 |
Verkmenntaskólinn á Akureyri | 263 | 324 | 18 | 605 | 269 |
Verzlunarskóli Íslands | 545 | 200 | 49 | 794 | 386 |
Samtals | 5.152 | 5.087 | 2.437 | 12.676 | 5.152 |