Aðalnámskrá: Opnir fundir um stuðningsefni SNKN
30. mars 2026
Í apríl og maí verða haldnir opnir fundir þar sem kynntir verða helstu áhersluþættir í stuðningsefni um skipulag náms, kennslu og námsmats (SNKN). Fundirnir eru ætlaðir til að veita góða innsýn í stuðningsefnið og styðja við innleiðingu þess í skólastarfi.

Við hvetjum skólastjórnendur til að senda fulltrúa á fundina til að fá kynningu og taka þátt í samtali um efnið. Hægt er að nálgast tengla á fundina í stuðningsefninu á vef Aðalnámskrár, auk þess sem hægt er að:
Stuðningsefni um skipulag náms, kennslu og námsmats
Stuðningsefni SNKN var gefið út í nóvember 2025 og er aðgengilegt öllum á vef Aðalnámskrár. Markmið þess er að styðja skóla í að efla gæði kennslu og náms í hæfnimiðuðu skólastarfi.
Efnið tekur meðal annars til:
hæfniviðmiða, námsmarkmiða og matsviðmiða
skipulags náms og styttri námstímabila
einstaklingsmiðunar og leiðsagnarmats
lokamats og vitnisburðar
Um stuðningsefnið
Til að styðja enn frekar við innleiðingu SNKN hefur einnig verið gefið út viðbótarefni, þar á meðal: