Á ferð og flugi í aðdraganda skólaárs
14. ágúst 2026
Það leynir sér ekki að nýtt skólaár er handan við hornið. Undirbúningur fyrir veturinn er kominn á fullt víða um land og starfsfólk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hefur heldur betur verið á ferð og flugi þessa vikuna. Við höfum hitt kennara, stjórnendur og annað fagfólk, miðlað þekkingu, kynnt verkfæri og námsgögn og ekki síst átt fjölmörg góð samtöl um skólasamstarfið framundan.

Íslensk námsgögn í sviðsljósinu
Við vorum á viðburðinum Íslensk námsgögn – hvað er til? þar sem sjónum var beint að íslenskum námsgögnum og því fjölbreytta efni sem stendur skólum til boða. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri MMS, flutti opnunarávarp og starfsfólk miðstöðvarinnar var á staðnum til að kynna efni og ræða við gesti.
Á ferð um landið
Ferðalag vikunnar náði þó mun víðar. Starfsfólk MMS tók þátt í Menntadegi Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu og endurmenntunardegi Akraness og Borgarbyggðar.
Heillaspor voru einnig á dagskrá vikunnar í Þingeyjarsveit og hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings. Heillaspor eru heildræn nálgun sem styður við velferð, öryggi og virka þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi.
Vikan endar á skólaþróun
Það er við hæfi að enda annasama viku á enn meiri skólaþróun. Ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun fer fram í Hörðuvallaskóla í Kópavogi í dag, 14. ágúst, undir yfirskriftinni Fagmennska og gefandi skólastarf.
MMS tekur þátt í dagskránni með málstofu auk þess sem gestir geta kynnt sér úrval námsgagna frá miðstöðinni. Dagskráin er fjölbreytt og þar verður meðal annars fjallað um verkefni, kennsluaðferðir og ólík sjónarhorn á fagmennsku og gefandi skólastarf.
Það er því óhætt að segja að skólaárið sé farið að gera vart við sig. Við hjá MMS hlökkum til vetrarins og áframhaldandi samstarfs við skólasamfélagið um land allt.