Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

6.000 bækur á leið til barna fæddra 2023 og leikskóla um allt land

20. október 2026

Um 6.000 eintök af bókinni Orð eru ævintýri eru nú á leið til barna fæddra árið 2023 og leikskóla um allt land. Þetta er í sjötta sinn sem bókin er gefin að gjöf og hefur hún fengið góðar viðtökur hjá bæði börnum og starfsfólki leikskóla. Markmiðið með gjöfinni er að vekja áhuga barna á tungumálinu, efla orðaforða þeirra og málskilning ásamt því að skapa tækifæri til samtals, lesturs og leiks, bæði heima og í leikskólanum.

Orð, leikur og læsi - heima og í leikskólanum

Orð eru ævintýri kom út árið 2023 og hafa börn fædd á árunum 2018-2022 áður fengið bókina að gjöf.

Að þessu sinni er komið að börnum fæddum árið 2023.

Bókin býður upp á fjölbreytt tækifæri til að skoða myndir, ræða orð og hugtök og uppgötva tungumálið saman. Foreldrar og aðrir sem sinna börnum geta nýtt hana til að skapa skemmtilegar lestrarstundir og tengja orð og hugtök við daglegt líf.

Leikskólar hafa einnig lýst ánægju með bókina og bent á hversu vel hún nýtist í daglegu starfi með börnum.

Fjölbreytt fræðslu- og námsefni til leikskóla

Auk bókarinnar Orð eru ævintýri fá allir leikskólar landsins fjölbreytt efni sem styður við málþroska, læsi, vellíðan, tilfinningaþroska og hreyfingu barna.

Meðal efnisins eru:

  • Álfakrílin
    efni sem eflir orðaforða og málnotkun barna

  • Láttu mig vera, áhyggjupúkar

    bók sem fjallar um áhyggjur og kvíða barna

  • Lúkas lesmús

    ný bók á íslensku, ensku og pólsku

  • Hreyfispil

    spil með æfingum og leiðbeiningum sem hvetja börn til hreyfingar og virkrar þátttöku

Samstarf um dreifingu bókanna

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu þakkar sveitarfélögum, A4 og leikskólum fyrir gott samstarf við dreifingu.

Við vonum að gjafirnar nýtist vel í leikskólastarfi og á heimilum, efli málþroska barna og skapi fjölmargar ánægjulegar stundir í kringum orð, lestur og leik.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280