Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

56 þúsund próf lögð fyrir í stöðu- og framvinduprófum um land allt

30. mars 2026

Fyrirlagnarglugga stöðu- og framvinduprófa í grunnskólum landsins er nú lokið og þátttaka hefur verið afar góð. Alls voru 56.268 próf lögð fyrir á tímabilinu. Heildarfjöldi nemenda í 4.–10. bekk grunnskóla er til samanburðar um 33 þúsund, en hver nemandi gat tekið allt að tvö próf, annars vegar í stærðfræði og hins vegar í lesskilningi. Þetta sýnir að afar hátt hlutfall nemenda um land allt þreytti prófin, þar á meðal í árgöngum þar sem þátttaka er valkvæð, sem bendir til þess að skólar hafi í ríkum mæli kosið að nýta prófin sem verkfæri í sínu skólastarfi.

Fyrirlögn gekk vel um land allt og skólar nýttu þann sveigjanleika sem felst í fyrirlagnarglugganum til að haga fyrirlögn í samræmi við sitt skipulag. Mikil samvinna einkenndi tímabilið og skýrt er að vilji til samstarfs og lausnamiðaðrar nálgunar hefur skilað góðum árangri.

„Það er ánægjulegt að sjá hversu vel hefur tekist að leggja prófin fyrir um land allt,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. „Það sem skiptir mestu máli er að börn um allt land fái tækifæri til að sýna stöðu sína og að niðurstöðurnar nýtist þeim í náminu. Við erum jafnframt mjög þakklát fyrir það góða samstarf sem hefur verið við skóla.“

Tækifæri til að styðja enn betur við nám barna

Niðurstöðurnar, sem verða birtar nemendur og foreldrum um miðjan maí, munu nýtast nemendum, kennurum og skólastjórnendum til að styðja við áframhaldandi nám og markvissa eftirfylgni með námsframvindu.

Þær skapa jafnframt mikilvægt tækifæri fyrir skóla til að rýna í stöðu nemenda, greina styrkleika og áskoranir og byggja á þeim í kennslu á næstu misserum. Áhersla Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu verður að styðja við skóla í þeirri vinnu, þannig að niðurstöðurnar nýtist sem best í námi barna um allt land.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280