Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Önnur eftirlitsskyld starfsemi

Efnisyfirlit

Eftirfarandi starfsemi lýtur eftirliti Lyfjastofnunar.

Lyfsala dýralækna

Samkvæmt 35. grein lyfjalaga er Lyfjastofnun heimilt að veita dýralæknum leyfi til að selja lyf sem ætlunin er að nota handa dýrum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum:

  1. Þeir hafi gilt starfsleyfi dýralæknis hér á landi sbr. lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr,

  2. þeir hafi tilkynnt Matvælastofnun að viðkomandi hafi hafið dýralæknastörf sem og um aðsetur starfseminnar.

Sjá leiðbeiningar fyrir dýralækna sem stunda lyfjasölu.

Leyfi dýralækna til að selja lyf sem ætlunin er að nota handa dýrum takmarkast við sölu og afhendingu eftirtalinna lyfja vegna dýra sem viðkomandi dýralæknir hefur til meðferðar:

  1. Lausasölulyf fyrir dýr

  2. Lyf sem ávísað er af dýralækni, samanber reglugerð 539/2000 um heimildir dýralækna til að ávísa lyfjum, með síðari breytingum

Á Mínum síðum Lyfjastofnunar er rafrænt umsóknareyðublað til að sækja um leyfi dýralæknis til að selja lyf sem ætlunin er að nota handa dýrum.

Tannlæknar

Starfssvið Lyfjastofnunar tengist starfsemi tannlækna þar sem þeir ávísa lyfjum og nota lyf í sínu starfi.

Vegna heimildar tannlækna til að ávísa lyfjum hvílir á þeim sama siðferðilega skylda og læknum að tilkynna um aukaverkanir. Tannlæknar eru hvattir til að tilkynna aukaverkanir.

Í lyfjaverðskrá er að finna upplýsingar um þau lyf sem tannlæknum er heimilt að ávísa hverju sinni.

Lyfjamiðlarar

Lyfjastofnun annast eftirlit með lyfjamiðlurum.

Samkvæmt 1. málsgrein 31. greinar lyfjalaga er miðlun lyfja þeim einum heimil sem hafa skráð sig sem lyfjamiðlara hjá Lyfjastofnun. Lyfjastofnun heldur úti og birtir á vef sínum lista yfir þá sem hafa heimild til að miðla lyfjum.

Til að skrá sig þurfa upplýsingar um nafn skráningaraðila, firmaheiti og fast heimilisfang að koma fram. Skráningaraðilar skulu tilkynna Lyfjastofnun ef breytingar verða á þeim upplýsingum án ónauðsynlegra tafa.

Lyfjastofnun er heimilt að fjarlægja lyfjamiðlara af listanum ef í ljós kemur að viðkomandi hefur brotið gróflega og ítrekað gegn þeim reglum sem gilda um starfsemina.

Skráðir lyfjamiðlarar

Nafn fyrirtækis

Ice Medica (IsM ehf.)

Kennitala

481216-0790

Starfsstöð

Borgartún 23, 105 Reykjavík

Netfang fyrirtækis

icemedica@icemedica.is

Vefsíða

www.icemedica.is

Blóðbankar

Lyfjastofnun hefur eftirlit með söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs og gæðum og öryggi við meðhöndlun frumna og vefja úr mönnum.