Í lyfjalögum er kveðið á um að sé ekki starfrækt sjúkrahússapótek á heilbrigðisstofnun sem starfrækt er á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu skal lyfjafræðingur m.a. bera ábyrgð á að afla lyfja, á geymslu þeirra, færslu tilskilinna skráa og eftirliti með notkun lyfjanna.
Hafi stofnunin ekki lyfjafræðing í þjónustu sinni á stjórn stofnunarinnar að semja við utanaðkomandi lyfsöluleyfishafa, lyfjafræðing eða sjúkrahússapótek um þjónustu sem felur í sér ábyrgð á að afla lyfja og eftirlit með notkun þeirra.
Lyfjastofnun hefur gefið út leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstofnanir varðandi samning um lyfjafræðilega þjónustu. Þar koma fram þau atriði sem lög og reglugerðir gera kröfu um að séu í slíkum samningnum. Skila skal afriti samnings um lyfjafræðilega þjónustu til Lyfjastofnunar sem gefur í kjölfarið út heimild á pöntun lyfja úr heildsölu fyrir viðkomandi heilbrigðisstofnun.