Prófmál - leiðbeiningar
Meðal þeirra skilyrða sem lögmaður þarf að uppfylla til að öðlast rétt til málflutnings fyrir Landsrétti er að hafa sýnt fram á með prófraun sem felst í munnlegum flutningi fjögurra mála, sem flutt eru í Landsrétti, þar af að minnsta kosti tveggja einkamála, að hann sé hæfur til að öðlast réttindin, sbr. 4. tl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/1998 um lögmenn. Samkvæmt niðurlagsákvæði 2. mgr. sömu lagagreinar meta dómendur Landsréttar sem skipa dóm í viðkomandi máli hvort umsækjandi stenst prófraun.