Jafnréttisstefna og jafnréttisáætlun Landsréttar

Jafnlaunavottun Landsréttar
Landsréttur leggur ríka áherslu á jafnrétti og gagnsæi í öllu sínu starfi. Liður í þeirri vegferð var að innleiða jafnlaunakerfi sem uppfyllir kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012, en í kjölfarið hlaut dómstóllinn formlega jafnlaunavottun.
Vottunin er staðfesting á því að hjá Landsrétti séu starfrækt vinnubrögð og kerfi sem tryggja að starfsfólki séu greidd jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni.