Háþrýsti- og Köfunarlækningadeild
Köfunaráætlun
Þessi þjónusta er ætluð köfurum á Íslandi sem hyggjast kafa utan þeirra marka sem gilda um tómstundaköfun eða við krefjandi aðstæður.
Beðið er um að skila köfunaráætlun fyrirfram ef köfun felur í sér eitthvað af eftirfarandi:
Kafað dýpra en 40 metra
Köfun lengri en 60 mínútur
Fyrirhuguð afþjöppunarstopp
Tækniköfun eða notkun sérstakra lofttegunda (helíum, súrefni)
Köfun í hæð yfir sjávarmáli
Köfun í lokuðu umhverfi (hella-, ís- eða flakaköfun)
Köfun vegna almannaöryggis eða sérverkefna
Köfun á afskekktum svæðum (t.d. á hálendinu)

Köfunaráætlun
Sæktu QR-kóðann, prentaðu hann út og plastaðu.
Hengdu hann upp í báti, á köfunarstöð eða í köfunarbúð, settu hann í köfunarbíl eða geymdu hann í köfunartöskunni þinni.
