Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heilbrigðisvottorð fyrir köfun

Læknisskoðun vegna hæfni til köfunar (fitness to dive) metur hvort einstaklingur sé heilsufarslega hæfur til að stunda köfun á öruggan hátt.

Skoðunin skal framkvæmd af lækni með viðurkennda sérhæfingu í köfunarlækningum.

Aðgangur að þjónustunni

Beiðnir skulu sendar með tölvupósti á: hok@landspitali.is

Upplýsingar sem þarf að fylgja beiðninni:

  • Kennitala

  • Tilefni beiðni (tegund köfunar)

Vegna mikillar eftirspurnar eru viðtöl nú aðeins í boði fyrir ákveðnar tegundir köfunar.
Mælt er með að óska eftir mati tímanlega, sérstaklega ef vottorð þarf fyrir ákveðinn dag.

Tímapantanir og spurningalistar

Tímar eru bókaðir samkvæmt forgangsröðun, ekki eftir komu tilvísunar. Ef frekari rannsókna er þörf kann að þurfa annað viðtal áður en vottorð er gefið út.

Upplýsingar um dagsetningu og tíma eru aðgengilegar í Landspítalaappinu.
Í sumum tilvikum þarf einnig að fylla út heilsufarsspurningalista í appinu fyrirfram. Sjá hvernig á að fylla út spurningalista hér undir kaflanum Spurningalistar.

Rannsóknir og prófanir

Í sumum tilvikum getur þurft frekari rannsóknir áður en vottorð er gefið út.
Það fer eftir tegund köfunar, aldri, heilsufari og sjúkrasögu.

Læknir upplýsir um hvaða rannsóknir eru nauðsynlegar.

Mögulegar rannsóknir:

  • Blóð- og þvagrannsóknir – E-1, 1. hæð

  • Hjartalínurit – C-3, 3. hæð

  • Lungnamynd – Röntgen E-3

  • Lungnapróf – tími boðaður sérstaklega

  • Heyrnarpróf – Læknastöðin Glæsibær

  • Áreynslupróf – Heilsuvernd

Hvað felst í fyrstu skoðun

  • Yfirferð sjúkrasögu

  • Mat á lyfjanotkun og heilsufari

  • Líkamsskoðun

  • Taugalæknislegt mat

  • Mæling hæðar og þyngdar

  • Lífsmörk

Lengd: 30–60 mínútur
Viðtöl: Þriðjudaga og miðvikudaga kl. 12:00–13:00

Tegundir köfunar sem metnar eru

  • Tómstunda-, íþrótta- og fríköfun

  • Tækniköfun (þ.m.t. CCR)

  • Köfun með yfirborðslínum

  • Atvinnu- og iðnaðarköfun

  • Almannavarna- og björgunarköfun

  • Her- og taktísk köfun

  • Mettað köfunarumhverfi (saturation)

Gildistími vottorðs

  • Tómstundaköfun (heilbrigðir einstaklingar): 5 ár

  • Atvinnuköfun (leiðbeinendur): 2 ár

  • Aðrar tegundir köfunar: 1 ár

Ef engar frábendingar finnast er vottorð gefið út rafrænt.

Hægt er að fá prentað vottorð með stimpli gegn beiðni, einkum fyrir alþjóðlega atvinnuköfun.