Háþrýsti- og Köfunarlækningadeild
Algengar spurningar og svör
Almennar spurningar
Háþrýstisúrefnismeðferð er sérhæfð læknismeðferð sem er eingöngu veitt við tilteknum, samþykktum ábendingum.
Til að fá aðgang að meðferðinni þarf tilvísun frá lækni með viðeigandi læknisfræðilegum upplýsingum.
Allar tilvísanir eru metnar af lækni deildarinnar, sem ákveður hvort skilyrði fyrir meðferð séu uppfyllt.
Háþrýstisúrefnismeðferð (HBOT) er aðeins veitt við tilteknum, samþykktum læknisfræðilegum ábendingum.
Ef ástand uppfyllir ekki þau skilyrði getur tilvísun verið hafnað.
Algengar ástæður höfnunar eru:
Ástand fellur ekki undir samþykktar ábendingar fyrir meðferð
Frábending er til staðar
Tilvísun inniheldur ekki nægjanlegar læknisfræðilegar upplýsingar
Ef talið er að ábending fyrir meðferð sé engu að síður til staðar er mælt með að ræða málið við tilvísandi lækni, sem getur veitt frekari ráðgjöf eða sent ítarlegri tilvísun ef við á.
Því miður er ekki hægt að breyta meðferðartíma fyrir einstaklinga.
Meðferðir eru skipulagðar í fastar þrýstihópa, þar sem hver hópur hefur ákveðinn tíma og sértæka meðferðaráætlun. Vegna mismunandi meðferðarferla er ekki hægt að færa sjúklinga á milli hópa.
Í undantekningartilfellum getur þurft að breyta tímasetningum fyrir heila hópa, til dæmis vegna bráðatilfella eða forgangstilvika. Deildin starfar allan sólarhringinn, allt árið, og meðferðir sem ekki eru bráðatilfelli fylgja fyrirfram skilgreindum tímasetningum.
Dæmi:
Hópur 1: 09:00
Hópur 2: 11:30
Ef sjúklingur er skráður í hóp 1 kl. 09:00 er ekki mögulegt að færa hann í annan hóp sama dag.
Deildin sinnir bráðatilfellum og starfar samkvæmt mismunandi viðbúnaðarstigum.
Af þeim sökum getur þurft að fresta áætluðum meðferðum eða læknaviðtölum með stuttum fyrirvara.
Ef þú færð SMS er mikilvægt að fylgja þeim leiðbeiningum sem þar koma fram.
Læknaviðtöl eru færð á næsta lausa tíma og verður haft samband með nýjar upplýsingar.
Meðferðir eru færðar á næsta mögulega tíma.
Algengasta ástæða aflýsinga er að háþrýstiklefi sé nýttur vegna flókinna bráðatilfella, sem geta krafist langvarandi eða samfelldrar notkunar. Í slíkum tilvikum eru sjúklingar látnir vita með SMS.
Í sjaldgæfum tilvikum getur aflýsing einnig stafað af öryggis-, veður- eða umhverfisaðstæðum.
Meðferðin dregst ekki frá heildarfjölda meðferða heldur færist einungis til.
Ef nýr tími hentar ekki mun starfsfólk aðstoða við endurbókun.
Nei. Silfurfyllingar (amalgam) og plastfyllingar (resín) valda ekki vandkvæðum við háþrýstisúrefnismeðferð og þarf ekki að skipta þeim út fyrirfram.
Eldri silfurfyllingar geta þó í sumum tilvikum valdið vægum óþægindum í fyrstu meðferð, oft vegna lausrar fyllingar þar sem loft getur lokast undir þrýstingi.
Ef verkur eða óþægindi koma fram í tönnum, eyrum eða andlitsbeinum skal láta lækni eða hjúkrunarfræðing vita strax. Þá er meðferð stöðvuð og mögulega ráðlagt að leita til tannlæknis áður en haldið er áfram.
Laga þarf ómeðhöndlaða tannskemmd áður en meðferð hefst. Einnig er mælt með tannröntgenmynd eftir viðgerð til að tryggja að ekkert loft sé undir fyllingu.

Því miður ekki.
Háþrýstisúrefnismeðferð (HBOT) er hvorki viðurkennd né talin gagnleg meðferð við síþreytu (ME/CFS).
Þótt einkenni ME/CFS og Long Covid geti að hluta til skarast eru þetta tveir aðskildir sjúkdómar.
Rannsóknir hafa sýnt ávinning af HBOT hjá völdum sjúklingum með Long Covid, en ekki hjá sjúklingum með ME/CFS.
Til að koma til greina í HBOT vegna Long Covid þarf formlega greiningu frá lækni sem uppfyllir skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) á Long Covid.
Því miður ekki.
Postural Orthostatic Tachycardia Syndrome (POTS) er ekki samþykkt ábending fyrir háþrýstisúrefnismeðferð (HBOT).
Í sumum tilvikum geta sjúklingar sem eru í meðferð vegna annarrar samþykktrar ábendingar einnig verið með POTS, en POTS eitt og sér veitir ekki rétt til meðferðar.
Aðeins þeir sem uppfylla samþykkt læknisfræðileg skilyrði koma til greina í meðferð. Ráðlagt er að ræða við lækni ef frekari spurningar vakna.
Meðferðin
Já. Hægt er að aðlaga innréttingu háþrýstiklefans að þörfum sjúklinga, með stólum, rúmum eða blöndu af hvoru tveggja.
Rúm eru eingöngu ætluð sjúklingum sem eru inniliggjandi, hreyfihamlaðir, koma með sjúkrabíl, þurfa bráðameðferð eða eru á gjörgæslu.
Sérhæft rúm er einnig til fyrir nýbura.
Ekki er nauðsynlegt að taka neitt sérstakt með sér, en strangar öryggisreglur gilda um það sem má fara með inn.
Leyfilegt:
Plastflaska án merkimiða
Bók, sudoku eða krossgáta með blýanti
Lesgleraugu
Óleyfilegt:
Símar, spjaldtölvur, fartölvur og önnur raftæki
Úr, skartgripir og aðrir fylgihlutir
Pennar, túss eða áherslupennar (öryggispenna má fá hjá starfsfólki)
Málm- eða glerflöskur
Förðun, hárvörur eða ilmvatn (naglalakk er leyfilegt)
Dagblöð eða pappír af dagblaðagerð
Plastklæddar bækur eða tímarit
Háþrýstisúrefnismeðferð (HBOT) er talin mjög örugg læknismeðferð með litla áhættu á fylgikvillum.
Flestar aukaverkanir eru vægar og hægt er að fyrirbyggja þær með ströngum öryggisreglum og leiðbeiningum starfsfólks.
Algengustu minniháttar óþægindi eru:
Erfiðleikar við að jafna þrýsting í eyrum
Þetta er algengast og starfsfólk leiðbeinir um einfaldar aðferðir til að koma í veg fyrir óþægindi.Væg vanlíðan í lokuðu rými (innilokunarkennd)
Háþrýstiklefi er rúmgóður, vel upplýstur og hannaður með þægindi í huga. Hægt er að dreifa huganum með því til dæmis að lesa og í sumum tilvikum er boðið upp á að horfa á mynd meðan á meðferð stendur.
Bráðameðferð
Því miður ekki. Bráðameðferð í háþrýstiklefa er læknisfræðileg aðgerð sem krefst fullrar athygli starfsfólks og óhefts aðgengis að rými deildarinnar. Aðstandendum eða fylgdarmönnum er ekki heimilt að vera inni á deildinni meðan á meðferð stendur.
Hægt er að bíða í setustofunni eða í mötuneyti spítalans.
Mælt er með að skilja eftir símanúmer og óska eftir upplýsingum um áætlaðan lengd meðferðar. Í sumum tilvikum er heimilt að koma með ákveðnar tegundir matar og drykkjar fyrir sjúkling.
Hægt er að hafa samband við deildina í gegnum símsvörun Landspítala í síma 543 1000 (frá útlöndum: +354 543 1000) og biðja um samband við köfunarstjórnstöð spítalans (opið allan sólarhringinn).
Við langar bráðameðferðir getur verið heimilt að borða inni í háþrýstiklefa.
Ekki neyta:
Gosdrykkja eða drykkja sem mynda loft (t.d. sódavatn, kók, appelsín, maltdrykkir)
Matvæla sem valda loftmyndun (t.d. baunir, maís)
Matar sem er steiktur eða feitur
Orkudrykkja, koffíns eða kaffis
Áfengis
Brjóstsykurs (hart nammi), tyggigúmmís eða nikótínpúða
Ís- eða ísmola
Popps
Óleyfileg matarílát:
Bollar eða önnur ílát úr frauðplasti
Málmbrúsar eða hitabrúsar
Glerílát
Málmhnífapör
Sjálfhitandi matarílát
Hernaðarmáltíðir (MRE)
Allur matur og ílát eru yfirfarin af öryggisfulltrúa áður en þau fara inn í háþrýstiklefa.
