Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Háþrýstimeðferð

Háþrýstimeðferð (á ensku: Hyperbaric Oxygen Therapy eða HBOT)

HBOT meðferð felur í sér að einstaklingur andar að sér 100% hreinu súrefni í þrýstiklefa. Heilbrigðisstarfsfólk veitir leiðbeiningar til að tryggja örugga og árangursríka súrefnismeðferð.

Áður en meðferð hefst fer fram viðtal við sérfræðing í háþrýsti- og kaflækningum.

Tilvísun

  • Tilvísun er nauðsynleg.

  • Allar tilvísanir eru metnar af lækni.

  • Ef tilvísun er samþykkt færð þú SMS og ert sett(ur) á biðlista fyrir viðtal.

Viðtal

Læknir mun:

  • Meta hvort meðferð eigi við

  • Greina mögulegar frábendingar

  • Útskýra meðferð og næstu skref

Viðtal er skilyrði fyrir meðferð. Aðrar reglur gilda í bráðatilfellum.

Viðtalið tekur venjulega 30–60 mínútur
Spurt er um heilsufar og lyf
Einföld skoðun ef þörf krefur
Mat á sári ef við á

Tungumál: Viðtöl fara yfirleitt fram á ensku. Hægt er að mæta með aðstandanda eða óska eftir túlki.

Eftir viðtal:

Læknir bókar meðferð með þér í viðtalinu, annars verður haft samband við þig símleiðis

Staðsetning

Landspítali Fossvogi, 2. hæð, E2

  • Skráðu þig inn með kennitölu í sjálfsafgreiðsluvél við aðalinngang

  • Fylgdu leiðbeiningum á skjá

  • Bíddu í brúnu biðstofunni

  • Ekki tilkynna komu þína til starfsfólks í biðstofu, þau tilheyra annarri deild.

Tímasetning

Tímar eru veittir eftir forgangi, ekki í þeirri röð sem tilvísanir berast.

Ef biðtími er langur er viðtal yfirleitt bókað stuttu áður en meðferð hefst.

Ferli HBOT meðferðar