Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Uppsetning ágripa

Tekið er við ágripum frá starfsfólki Landspítala og innlendra háskóla, en ekki er tekið við ágripum frá erlendum stofnunum, án tengingar við íslenskar stofnanir.

Ágrip má senda inn á íslensku eða ensku. Erindi skulu haldin á íslensku en veggspjöld á ensku eru leyfð. Ágripum sem eru ekki í samræmi við leiðbeiningar um hámarkslengd eða uppsetningu verður hafnað.

Uppsetning ágripa

Ágrip má að hámarki vera 250 orð að lengd og titillinn að hámarki 15 orð. Fyrirsagnir kafla teljast ekki með í orðafjölda. Ekki skal hafa heimildaskrá eða heimildavísanir í ágripi.

Ágripi skal skipta í eftirfarandi kafla:

  1. Titill – feitletraður (hámark 15 orð)

  2. Nöfn höfunda, stofnana og/eða deilda — heiti deilda á að vera með litlum staf og nafn flytjanda skal vera undirstrikað.

  3. Undirfyrirsagnir skulu vera feitletraðar

  4. Meginmál sé skipt í eftirfarandi kafla (255 orð með kaflaheitum)
    A. Inngangur
    B. Markmið
    C. Aðferðir
    D. Niðurstöður
    E. Ályktanir

Vanda skal til málfars.

Athugið að ágripum skulu hvorki fylgja töflur né myndir.

Innsending ágripa

Ágrip eru send inn í gegnum ReasearchWeb. Kerfið opnast í nýjum glugga þegar smellt er á hlekkinn hér til hliðar.

Við skil ágripa gefst höfundum kostur á að merkja við hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða kynna veggspjald á ráðstefnunni. Sami höfundur má vera aðili að fleiri en einu innsendu ágripi. Almennt verður þó aðeins gert ráð fyrir einu munnlegu erindi á hvern flytjanda. Ef fleiri en eitt ágrip sama höfundahóps er samþykkt til munnlegrar kynningar getur annar meðhöfundur tekið að sér flutning.

Yfirlestur ágripa er í höndum forstöðumanna fræðasviða sem áskilja sér rétt til að hafna ágripum ef málfar er óvandað. Ágrip verða ekki endursend til lagfæringar, einungis hafnað eða samþykkt. Ef nemendur senda inn ágrip er skilyrði að leiðbeinandi lesi yfir og samþykki innsent ágrip. Ágrip þurfa að uppfylla ákveðin grunnskilyrði um gæði og fjalla um niðurstöður rannsókna, gæðaeftirlits eða umbótaverkefna, en ekki um áætlanir eða hugmyndir að verkefnum. Við mat á ágripum verður meðal annars horft til skýrleika markmiðs/rannsóknarspurningar, aðferðafræði, framsetningar á niðurstöðum og þess hvort ályktanir eru studdar niðurstöðum og mikilvægis rannsóknar fyrir kvenna- og barnþjónustuna.

Researchweb

Leiðbeiningar: Innskráning/nýskráning í Researchweb

Starfsmaður/notandi sem nú þegar hefur notendareikning skráir sig inn í kerfið með tölvupóstfangi og lykilorði. Það getur farið eftir vafrakökustillingum hvernig innskráningin birtist notanda, í annan stað birtist síða þar sem smella þarf á „Innskráning“ í hægra horni vefsíðunnar til að skráningarglugginn birtist og í hinn staðinn opnast skráningarglugginn beint.

Það sama á við þegar stofna skal nýjan notendareikning. Í skráningarglugganum er síðan smellt á „Skrá nýjan reikning“. Rafrænt eyðublað opnast þá þar sem notendaupplýsingar eru skráðar.

Mikilvægt

Við stofnun nýs notendareiknings er mjög mikilvægt að velja ekki „Hide my user account…“ í öryggisstillingum heldur annan hvorn „show my user account…“. Einnig er mikilvægt að haka við aðgang kerfisstjóra að reikningi (administrator access). Við lok skráningar persónuupplýsinga er smellt á „Skrá“ neðst í hægra horni síðunnar.

Kerfið sendir sjálfvirkan rafpóst til staðfestingar á að skráning hafi tekist með tímabundnu aðgangsorði sem notandi breytir síðan innan í notendareikning sínum. Það er gert með því að setja bendilinn á notendanafnið í hægra horni síðunnar og velja þar „Notendareikning“. Þá opnast nýr gluggi þar sem smellt er á „Aðgangsorð“ neðst á síðunni og þar er aðgangsorði breytt.

Researchweb rannsóknar– og styrkumsjónarkerfið heldur utan um ferilskrá notenda (CV) og fylgja þær upplýsingar notanda sjálfkrafa þegar gerðar eru umsóknir eða send inn ágrip. Til þess að skrá, breyta og/eða bæta við í ferilskrá er bendillinn settur á notendanafnið í hægra horni og valið er „Breyta ferilskrá“. Leiðbeiningar um gerð ferilskrár er að finna í „Hjálp“ á borða vinstra megin á síðunni undir „User account/CV“.

Athygli er vakin á því að við mat á innsendum ágripum er stuðst við þær persónu- og ferilsupplýsingar sem umsækjandi setur inn í kerfið og er því mjög mikilvægt að uppfæra ferilskrána reglulega, þ.m.t. ritlista.

Kerfisstjóri Researchweb á Landspítala er Sigríður Bergþórsdóttir verkefnastjóri í Vísindadeild.