Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar - Vika 9 2026

5. mars 2026

Árlegur inflúensufaraldur heldur áfram. Greindum tilfellum hefur fækkað undanfarið og virðist toppi hafa verið náð.

Staðan á Íslandi

Að meðaltali greindust 15 tilfelli inflúensu síðastliðnar 4 vikur. Í viku 9 var fjöldi greindra tilfella RS-veirusýkingu (RSV) 25 og lágu níu einstaklingar inni á Landspítala með RSV.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir viku 9 (23. febrúar−1. mars 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni.

Inflúensa

Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur. Toppi virðist hafa verið náð í fyrstu viku desembermánaðar 2025 en hversu lengi faraldur heldur áfram er enn óljóst. Sjá mynd 1 og mælaborð.

Mynd. 1. Inflúensugreiningar. Vika 9

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauð lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins, sjá mælaborð sóttvarnalæknis.

Í viku 9 greindust 19 tilfelli inflúensu, allt tilfelli af tegund A, þar af þrjú af tegund A(H3) og 16 af tegund A(pdm09). Einstaklingar sem greindust voru í eftirfarandi aldurshópum: 13 einstaklingar 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára, einn 5−14 ára og eitt barn undir 5 ára. Tíu einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu, allir 65 ára og eldri. Sjá mynd 2.

Mynd. 2. Innlagðir með inflúensu. Vika 9

Mynd 2: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu innlagðir á Landspítala frá viku 42 árið 2025 til viku 9 árið 2026.

Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Engin tilfelli af tegund B hafa greinst hér síðastliðnar 5 vikur en ekki er útilokað að geti greinst á næstu vikum.

Veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.

Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

RS-veirusýkingar

Í viku 9 greindust 25 tilfelli RS-veirusýkingar (RSV), átta einstaklingar 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára, einn 5−14 ára, eitt barn 3−4 ára, tíu börn 1−2 ára og eitt barn undir 1 árs. Sjá mynd 3. Níu einstaklingar lágu inni á Landspítala með RS−veiru, fimm 65 ára og eldri, einn 15−65 ára og þrjú börn 1−2 ára. Að meðaltali hafa greinst 21 tilfelli RSV á viku síðustu fjórar vikur. Nú í vetur býðst börnum sem eru fædd 1. maí 2025 eða síðar mótefni gegn RSV (nirsevimab) auk barna 6−23 mánaða sem Barnaspítali Hringsins hefði að öðrum kosti boðið palivizumab.

Nánari upplýsingar um RS-veirusýkingar og bólusetningar gegn RSV má finna á vef embættis landlæknis.

Mynd. 3. RSV greiningar. Vika 9

Mynd 3: Fjöldi greininga og aldur einstaklinga með RSV á viku frá viku 48 árið 2025 til viku 9 árið 2026 (sjá einnig mælaborð sóttvarnalæknis).

Þáttaka í RSV bólusetningum er áfram góð (mynd 4) og þær munu halda áfram í mars. Áætluð lok bólusetningartímabils eru við næstu mánaðamót en faraldsfræði RSV og framboð mótefnis ræður nokkru þar um.

Mynd 4. Þátttaka í RSV bólusetningum. Vika 9

Mynd 4. Þátttaka í RSV bólusetningunum hefur verið mjög góð.

RSV dreifing í vetur

Útbreiðsla RSV hefur verið mun minni en á sama tíma síðustu tvö ár (mynd 5). Þekkt er að RSV faraldrar eru mjög misþungir milli ára og er ekki hægt að eigna bólusetningum ungbarna minni útbreiðslu í öðrum aldurshópum. Hlutfallslega minna er um sýkingar hjá börnum á fyrsta æviári og sérstaklega hjá yngstu börnunum miðað við samanburðarár. Sýkingar hjá börnum í markhópi bólusetninga eru örfáar í vetur og um þriðjungur þeirra hefur ekki verið bólusettur fyrir sýkinguna. Þrjú börn undir 12 mánaða aldri hafa verið lögð inn á LSH með RSV en bólusetningasaga þeirra liggur ekki fyrir. Nánari upplýsingar um RSV faraldur þessa tímabils og fyrri tímabila er að finna í mælaborði.

Mynd 5. RSV greiningar á SVEID. Vika 9

Mynd 5. RSV greiningar hjá Sýkla- og veirufræðideild LSH hafa verið mjög fáar það sem af er vetri miðað við sömu tímabil síðastliðna tvo vetur.

Mynd 6. Aldursdreifing RSV. Vika 9

Mynd 6. Aldursdreifing RSV greininga hjá börnum á fyrsta ári. Tímabil 2023-2024 og 2024-2025 sýna aldursdreifingu allt RSV tímabilið.

Jafnvel þótt RSV faraldur vetrarins hafi verið lágstemmdur eru teikn um að aldursdreifing greininga sé frábrugðin því sem við höfum vanist og standa vonir til að hægt verði að sýna fram á góð áhrif bólusetninga gegn RSV á heilsufar ungra barna hér á landi.

COVID-19

Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur. Í viku 9 greindust fjórir einstaklingar, þrír 65 ára og eldri og einn 0−4 ára. Síðustu fjórar vikur greindust að meðaltali 8 tilfelli COVID-19 á viku. Þrír einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með COVID-19, tveir í aldurshópnum 65 ára og eldri og einn undir 1 árs.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist um þessar mundir mest af rhinoveiru (kvefi), human metapneumoveiru og kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2 á Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 10–30 en í viku 9 greindust 17 með rhinoveiru, 17 með human metapneumoveiru og 35 með kórónuveiru aðra en SARS-CoV-2.

Staðan í Evrópu

  • Í flestum ríkjum ESB/EES er fjöldi fólks sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma enn hár, sem bendir til að enn sé veruleg útbreiðsla öndunarfærasýkinga.

  • Útbreiðsla inflúensu er áfram víðtæk en hefur almennt farið minnkandi undanfarnar vikur. Á heildina litið hefur sjúkrahúsinnlögnum fækkað frá áramótum, en einstaklingar 65 ára og eldri hafa verið stærsti hluti innlagna á tímabilinu. Inflúensa A(H3) er enn ríkjandi undirtegundin, en þar á eftir kemur A(H1)pdm09. Lítil útbreiðsla hefur verið af tegund B.

  • Útbreiðsla RSV er enn mikil en misjöfn milli ríkja. Börn undir fimm ára eru stærsti hópurinn sem leggst inn á spítala vegna RSV.

  • Útbreiðsla COVID-19 (SARS-CoV2) er áfram lítil í öllum aldurshópum og fjöldi sjúkrahúsinnlagna er lítill miðað við inflúensu og RSV.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Inflúensubólusetningar eru ekki lengur í boði.

  • Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við (sjá hér að ofan).

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir