Sýklalyfjadagurinn 2026. Fræðsludagur sóttvarnalæknis
18. nóvember 2026
13:00 til 15:00
Embætti landlæknis, Nesstofa. Katrínartúni 2, 6. hæð (og á Teams)

Í tilefni Vitundarvakningar um sýklalyfjaónæmi mun sóttvarnalæknir halda málþing miðvikudaginn 18. nóvember 2026.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 16. nóvember 2026 með tölvupósti á netfangið juliana.hedinsdottir@sottvarnir.is og takið fram hvort þið hyggist mæta á staðinn eða hlusta á fundinn í streymi. Hlekkir til að tengjast fundinum verða sendir til þeirra sem hafa skráð sig þegar nær dregur. Hámarksfjöldi í sal verður 50 manns. Ekkert þátttökugjald.
Þema málþings: Frá vitund til forvarna: Sýklalyfjanotkun, sýkingavarnir og bólusetningar
Fundarstjóri: Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir
Dagskrá málþings (pdf)
Dagskrá
13:00–13:10 Setning málþings og inngangsorð.
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir13:10–13:30 Sýklalyfjaónæmi á Íslandi – staðan, þekking almennings og leiðir til úrbóta.
Anna Margrét Halldórsdóttir yfirlæknir, svið sóttvarnalæknis13:30–13:50 Rétt sýklalyf þegar þeirra er þörf – sýklalyfjagæsla í daglegu starfi.
Einar Þór Þórarinsson yfirlæknir, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu13:50–14:05 Kaffihlé
14:05–14:25 Sýkingavarnir í daglegu starfi heilbrigðisstarfsfólks – hvað skiptir mestu máli?
Sólveig Björk Einarsdóttir, sérfræðingur sýkingavarna, svið sóttvarnalæknis14:25–14:45 Bólusetningar sem vörn gegn sýklalyfjaónæmi.
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir yfirlæknir, svið sóttvarnalæknis14:45–15:00 Umræður og lokaorð.
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir