Skógarreitur á Kirkjubæjarklaustri

Almennt um skóginn
Á Kirkjubæjarklaustri er alllöng hefð fyrir skógrækt og eru skógarlundir beggja vegna við Systrafoss. Í skóginum vex aðallega birki og sitkagreni. Fjölskyldan á Klaustri stofnaði til skógræktarinnar og er skógurinn í eign Klausturbænda en Land og skógur hefur umsjón með svæðinu. Á seinni árum hefur ýmsum trjátegundum verið bætt við, stígar gerðir í gegnum skóginn og sett upp borð og bekkir. Hæsta tré á Íslandi vex í skóginum á Klaustri. Það er fyrsta tréð sem náð hefur 30 metra hæð á Íslandi á sögulegum tíma.

Staðsetning og aðgengi
Skógurinn á Kirkjubæjarklaustri er í brekkunni ofan við kauptúnið umhverfis Systrafoss.
Aðstaða og afþreying
Stígar hafa verið lagðir um reitinn og útbúnir áningarstaðir með bekkjum. Gönguleiðin að Systravatni upp með Systrafossi liggur í gegnum skóginn. Einnig er torfarinn stígur að Sönghelli sem er undir klettum vestan við Systrafoss.
Saga skógarins
Upphaf skógarins má rekja til þess að heimafólk á Klaustri girti af brekkurnar ofan við bæinn og gróðursetti þar 60.000 birkiplöntur. Áttu hjónin Helgi Lárusson og Sigurlaug Helgadóttir stóran þátt í því að til skógarins var stofnað. Á næstu árum var bætt inn sitkagreni-, lerki- og furutrjám. Um 1964 var gerður samningur við Skógræktina um viðhald girðinga og umsjón með skóginum. Hefur aðgengi að skóginum verið bætt mjög síðustu áratugi auk þess að bætt hefur verið við sjaldgæfum trjátegunum, sett upp skilti og fleira.
Trjárækt í skóginum
Mest er af birki og sitkagreni í skóginum. Á seinni árum hefur verið bætt við tegundum eins og hlyni, álmi, reynitegundum, aski, þöll og lífviði.

Annað áhugavert í skóginum
Hæsta sitkagrenitré landsins er að finna í reitnum við Kirkjubæjarklaustur og mældist það 30,15 m á hæð haustið 2022. Ekki er vitað um hærri tré á Íslandi. Skilti er við tréð og upplagt að láta taka mynd af sér við hæsta tré landsins og faðma tréð í leiðinni. Enginn veit hvað er að faðma tré nema sá sem reynt hefur.
Skilti
Hér fyrir neðan er að finna upplýsingaskilti um skógarreitinn á Kirkjubæjarklaustri. Smellið á hlekkinn neðan við myndina til að sjá pdf-skrá af skiltinu í meiri upplausn.

