Lands og skógi er skipt í 5 svið undir stjórn forstjóra.
Sviðin ásamt sviðsstjórum eru:
Sjálfbær landnýting - Bryndís Marteinsdóttir
Þjóðskógar og lönd - Hreinn Óskarsson
Rannsóknir og þróun - Brynjar Skúlason
Ræktun og nytjar - Hrefna Jóhannesdóttir
Endurheimt vistkerfa - Gústav Ásbjörnsson
2 deildir starfa þvert á sviðin:
Gögn, miðlun og nýsköpun – Gunnlaugur Guðjónsson
Fjármál og þjónustumiðstöð - Elín F. Sigurðardóttir
Svið
Stoðþjónustusvið
Stoðþjónustusviðin eru 2. Þau styðja ásamt skrifstofu forstjóra við fagsviðin.
Stjórnsýsla og stefnumörkun.
Lögfræðileg úrlausnarefni og umsagnir.
Teymi mannauðs, gæða og öryggis í samvinnu við Gögn, miðlun og nýsköpun og Fjármál og þjónustumiðstöð.
Stafræn þróun, upplýsingatækni, landupplýsingar og gagnagreiningar.
Miðlun og samskipti.
Verkefnastjórnun og eftirlit.
Skipulagsmál.
Teymi mannauðs, gæða og öryggis í samvinnu við Skrifstofu forstjóra og Fjármál og þjónustumiðstöð.
Skógarkolefni.
Vottun og þróun kolefnisverkefna.
Viðskiptaþróun.
Markaðsmál og nýsköpun.
Fjármál, bókhald, launavinnsla, verkbókhald og uppgjör verkefna.
Skjöl og saga.
Innkaup.
Þjónustumiðstöð.
Teymi mannauðs, gæða og öryggis í samvinnu við Skrifstofu forstjóra og Gögn, miðlun og nýsköpun
Fagsvið
Fagsviðin eru 5 talsins.
Ástand gróður- og jarðvegsauðlinda og áhrif nýtingar á þær.
Yfirsýn á nýtingu.
Stuðla að sjálfbærri landnýtingu.
Framfylgja reglugerð um sjálfbæra landnýtingu í samvinnu við Ræktun og nytjar.
Landshluta- og svæðisáætlanir.
Vernd vistkerfa.
Teymi loftslags með Rannsóknir og þróun og Gögn, miðlun og nýsköpun.
Teymi vöktunar með Rannsóknir og þróun.
Fræðsla og ráðgjöf.
Umsjón með þjóðskógum og ríkislöndum.
Umsjón með landgræðslusvæðum í samvinnu við Endurheimt vistkerfa.
Samstarfsverkefni.
Innviðir og útivist.
Teymi þróunar viðarafurða með Ræktun og nytjar.
Teymi endurheimtar birkiskóga með Endurheimt vistkerfa.
Fræðsla og ráðgjöf.
Heilbrigði, sjúkdómar og skaðvaldar.
Erfðafræði og auðlindir.
Teymi hringrásar næringarefna í samvinnu við Endurheimt vistkerfa og Ræktun og nytjar.
Teymi loftslags í samvinnu við Sjálfbæra landnýtingu.
Teymi vöktunar í samvinnu við Sjálfbæra landnýtingu.
Aðferðir við endurheimt í samstarfi við Endurheimt vistkerfa.
Vistfræði.
Kolefnismál í samvinnu við önnur svið.
Íslensk skógarúttekt.
Hagfræði landgræðslu og skógræktar.
Flokkun birkiskóga.
Rannsóknarstofur.
Fræðsla og ráðgjöf.
Framfylgd reglugerðar um skógrækt á lögbýlum.
Skjólbelta- og skjóllundarækt.
Eftirlit með sjálfbærri landnýtingu í samvinnu við Sjálfbæra landnýtingu.
Tryggja framboð af trjáplöntum.
Stuðla að þróun viðarafurða og sölu í samvinnu við Þjóðskóga og lönd.
Fræðsla og ráðgjöf í samvinnu við Endurheimt vistkerfa.
Endurheimt votlendis (EHV).
Teymi endurheimt birkiskóga í samstarfi við Þjóðskóga og lönd.
Bændur græða landið (BGL) í samvinnu við Ræktun og nytjar.
Umsjón með landbótasjóði (LBS).
Varnir gegn landbroti (VGL).
Varnir gegn náttúruvá.
Umsjón með landgræðslusvæðum í samvinnu við Þjóðskóga og lönd.
Fræverkun; Fræðsla og ráðgjöf í samvinnu við Ræktun og nytjar.
Verkstýrð verkefni ganga þvert á svið stofnunarinnar og mikil áhersla er lögð á að tryggja samhæfingu og samstarf á milli sviða eins og heppilegast þykir til árangurs.