Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Land og skógur í stuttu máli

Hlutverk Lands og skógar samkvæmt lögum

Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu rannsókna-, eftirlits-, og fræðsluhlutverki við að vernda, endurheimta og bæta þessar auðlindir Íslands og stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra. Stofnunin varð til við sameiningu Skógræktarinnar og Landgræðslunnar í ársbyrjun 2024. Hún vinnur ötullega að fjölmörgum verkefnum í takti við hlutverk stofnunarinnar og aðgerðaáætlun stjórnvalda, Land og líf. Verkefnin stuðla að því að markmið um sjálfbæra landnýtingu náist.

Markmið stofnunarinnar

Meginmarkmið Lands og skógar eru að bæta gróður- og jarðvegsauðlindir þjóðarinnar, nýta land af sjálfbærni, vakta og hafa yfirsýn, stuðla að bindingu kolefnis. Jafnframt að virkja og fræða almenning og hagsmunaaðila um gróður- og jarðvegsvernd, sjálfbæra nýtingu lands, uppbyggingu og endurheimt vistkerfa, skóga og skógrækt.

Lög um Land og skóg

Samkvæmt lögum um Land og skóg, nr. 66/2023, hefur stofnunin eftirlit með og annast framkvæmd laga um landgræðslu og laga um skóga og skógrækt. Þá annast stofnunin jafnframt daglega stjórnsýslu samkvæmt þeim lögum ásamt öðrum lögum sem stofnunin starfar eftir og alþjóðlegum samningum sem snerta viðfangsefni stofnunarinnar.

Sjá nánar á síðunni Lög og reglugerðir.

Styrkleikar Lands og skógar

  • Djúp sérfræðiþekking á málefnum sjálfbærrar landnýtingar.

  • Mikilvægt hlutverk í aðgerðum sem stuðla að því að draga úr losun Íslands frá landi og binda kolefni.

  • Nálæg þjónusta með starfstöðvum í öllum landshlutum.

  • Margvíslegir samstarfsfletir við landeigendur, stofnanir og aðra hagaðila.

Meginþættir starfseminnar

  • Að efla landgæði með uppgræðslu og endurheimt hnignaðra vistkerfa.

  • Að vernda skóglendi, rækta nýja skóga og stuðla að útbreiðslu náttúruskóga.

  • Að vernda votlendissvæði og endurheimta raskað votlendi

  • Að stunda rannsóknir og vöktun, miðla þekkingu og fræða

Sjá nánar á síðunni Skipurit og svið.