Stefna HSS
Stefna HSS til 2030
Á 70 ára afmæli Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þann 18. nóvember 2024 var kynnt stefna stofnunarinnar til ársins 2030.
Fjölmargir komu að gerð stefnunnar og má þar nefna íbúa, skjólstæðinga, starfsfólk, stjórnendur, landlæknisembættið og bæjarstjórnendur á Suðurnesjum.
Hlutverk HSS er að auka heilbrigði íbúa á Suðurnesjum.
Markmiðin eru fjögur. Almenn lýðheilsa sem vísar til lýðheilsuvísa embættis, ánægja með HSS sem vísar til notenda þjónustunnar, viðurkennt kennslusjúkrahús sem vísar til framtíðarþekkingar og síðast en ekki síst er markmið um öryggismenningu og stöðugar umbætur.
Gildi HSS eru mennska, myndugleiki og menning. Mennska – þar er átt við samspil sjúklings og starfsfólks sem byggir á umhyggju fyrir skjólstæðingum og samstarfsfólki, sýnum hvort öðru mennsku. Myndugleiki verður ekki til nema að hafa þekkingu, styrk og sýn, stofnunin sé traustsins verð og hefur ákveðinn trúverðugleika. Menning tengist 70 ára sögu stofnunarinnar og að þörf sé fyrir að menning HSS og samfélagið á Suðurnesjum vinni náið saman að því að starfsemi HSS þjóni þörfum samfélagsins og sé til fyrirmyndar.
Framtíðarsýnin er að HSS verði heilbrigðisstofnun til fyrirmyndar.
Kjarni stefnunnar er skammstafaður HSS sem er vísun í Heilsu, Starfsfólks og Skjólstæðinga
Stefnuáherslurnar eru – Traust – Þjónusta – Starfsfólk – Sjálfbærni.
Allt vísar til samfélagslegrar ábyrgðar HSS.
Stefna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til ársins 2030
