Gjaldskrá
Greiðslur fyrir þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja eru ákveðnar af Heilbrigðisráðuneytinu í reglugerðum og af framkvæmdastjórn HSS fyrir aðrar útseldar þjónustur en heilbrigðisþjónustu.
Gjaldskrá er mismunandi eftir því hvort um sjúkratryggða eða ósjúkratryggða er að ræða.
Gjaldskrá þjónustu á heilsugæslu
Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og sjúkraþjálfara á dagvinnutíma frá 8 til 16
- almennt gjald 500 kr.Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og sjúkraþjálfara utan dagvinnutíma
- almennt gjald 3.100 kr.
Börn undir 18 ára aldri, börn með umönnunarkort, aldraðir og öryrkjar og þeir sem koma vegna mæðraverndar greiða ekki.
Ósjúkratryggðir
Koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma frá rá 8 til 16
- 12.973 kr.Koma á heilsugæslustöð vegna mæðra- og ungbarnaverndar
- 12.973 kr.Koma á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma og á laugardögum og helgidögum
- 19.201 kr.
Rannsókn með beiðni til rannsóknarstofu
- almennt gjald 3.503 kr.
- aldraðir og öryrkjar 2.335 kr.Krabbameinsleit
- almennt gjald 500 kr.
- aldraðir og öryrkjar 0 kr.
Auk komugjalda greiða sjúkratryggðir fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega. Greiðslur fyrir bóluefni fara ekki inn í afsláttarstofn.
Þessi hluti gjaldskrárinnar er uppfærður mánaðarlega, innan þriggja virkra daga frá mánaðamótum.
Bóluefni við árstíðabundinni inflúensu er að kostnaðarlausu þeim sem eru í tilgreindum áhættuhópum.
Ekki er greitt fyrir reglubundnar bólusetningar í heilsuvernd barna.
Ósjúkratryggðir
Auk komugjalds greiða ósjúkratryggðir fyrir
bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega.
barnabólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega.
Gjöld fyrir læknisvottorð í heilsugæslu
Vottorð vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fötluð og sjúk börn, 0 kr.
Vottorð vegna endurhæfingarlífeyris, 0 kr.
Örorkuvottorð vegna lífeyristrygginga, 0 kr.
Örorkuvottorð vegna slysatrygginga, 0 kr.
Vottorð um fjarvistir nemenda úr skólum, 2.346 kr.
Framhaldsvottorð vegna slysatrygginga, 842 kr.
Áverkavottorð vegna slysatrygginga, 1.816 kr.
Vottorð vegna beiðni um þjálfun, 1.816 kr.
Vottorð vegna öflunar hjálpartækja, 1.816 kr.
Vottorð vegna lengingar fæðingarorlofs, 1.816 kr.
Vottorð vegna hreyfihömlunar (uppbót v. reksturs bifreiðar), 1.816 kr.
Vottorð vegna heimahjúkrunar, 1.816 kr.
Vottorð vegna vistunar sjúklings erlendis, 1.816 kr.
Vottorð vegna umsóknar um lyfjaskírteini, 1.816 kr.
Vottorð vegna sjúkranudds, 1.816 kr.
Vottorð vegna sjúkradagpeninga, 1.816 kr.
Vottorð vegna ferðakostnaðar innanlands, 1.816 kr.
Vottorð vegna umsóknar um styrk og uppbót til kaupa á bifreið fyrir fatlaða, 1.816 kr.
Vottorð vegna bóta úr slysa- og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, án greinargerðar, 1.816 kr.
Vottorð um starfshæfni og fyrir staðfestingu á heilsufari til Virk, 2.174 kr.
Vottorð um fjarvistir til atvinnurekenda, 2.346 kr.
Vottorð um heilsufar nemenda til skóla, leikskóla og sumarbúða, 2.346 kr.
Vottorð um ónæmisaðgerðir og alþjóðaónæmisskírteini, 2.346 kr.
Vottorð um undanþágu til bílbeltanotkunar, 2.346 kr.
Vottorð vegna dagmóðurstarfa, 2.346 kr.
Vottorð vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar, s.s. ferðarofs 2.346 kr.
Vottorð til skattayfirvalda, 2.346 kr.
Vottorð vegna veitingar ökuleyfis, 2.346 kr.
Vottorð um heilsufar einstaklinga til félagsþjónustunnar og annarra stofnunar, 2.346 kr.
Vottorð um heilsufar kjörforeldra, stuðningsforeldra og fósturforeldra, 2.346 kr.
Vottorð vegna byssuleyfis, 7.264 kr.
Vottorð vegna skóla og sumarbúða erlendis, 7.264 kr.
Vottorð um heilsufar eða vinnufærni vegna umhverfis eða atvinnu, þ.m.t. vegna atvinnuréttinda (meiraprófs), 7.264 kr.
Vottorð um niðurstöður úr Covid sýnatökum, 7.609 kr.
Fyrir eftirfarandi vottorð skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 6.098 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð vegna þungunarrofs og ófrjósemisaðgerða
Vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða
Fyrir eftirfarandi vottorð skal að lágmarki greitt fyrir klukkutímavinnu læknis, 16.540 kr. og síðan 5.513 kr. til viðbótar fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð til lögmanna og tryggingafélaga vegna sjúkdóma eða slysa, til tryggingafélaga vegna líf- og sjúkdómatrygginga eða umsókna um örorkubætur eða ættleiðingu, til lögreglu, sýslumanna, vegna dvalar- og/eða atvinnuleyfa hér á landi og dvalar eða starfa erlendis,
Ítarlegt vottorð um heilsufar einstaklings vegna beiðni þriðja aðila (skóla, atvinnurekanda, sjómannavottorð)
Greiðslur vegna vottorða fara ekki í afsláttarstofn.
Sjúkratryggðir
Auk komugjalda skulu 18 ára og eldri, aldraðir og öryrkjar greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:
Þungunarpróf, 870 kr.
Streptókokkarannsóknir, 272 kr.
Lyfjaleit í þvagi, 870 kr.
CRP (C-reaktíft prótein), 1.141 kr.
HbA1c (glýkósýlerað hemóglóbín), 1.631 kr.
Berklapróf (Mantoux), kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Lykkja (T), 3.805 kr.
Hormónalykkja, kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Ofnæmispróf (prick húðpróf), kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Pokar vegna blóðaftöppunar, 1.413 kr.
Afnot af rannsóknatæki fyrir kæfisvefn, 6.779 kr.
Leigugjald fyrir afnot af blóðþrýstingsmæli í 24 stundir, 6.779 kr.
ADHD greining fullorðinna, 27.175 kr.
Ósjúkratryggðir
Auk komugjalda skulu greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:
Þungunarpróf 870 kr.
Streptókokkarannsóknir 272 kr.
Lyfjaleit í þvagi 870 kr.
CRP (C-reaktíft prótein) 1.141 kr.
HbA 1c (glýkósýlerað hemóglóbín) 1.631 kr.
Berklapróf - Mantoux (Tuberkulin) sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Lykkja (t) 3.805 kr.
Hormónalykkja sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Gjöld fyrir læknisvottorð skulu miðast við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 8.563 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknarstofu og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknarstofu skal greiða 6.098 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.
Fyrir hverja komu til geisla- og myndgreiningar skal greiða 6.098 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.
Fyrir nauðsynlega túlkaþjónustu skal sjúklingur greiða fullt gjald samkvæmt samningi Ríkiskaupa þjónustuaðila um túlkaþjónustu.
Önnur útseld þjónusta HSS
Tímagjald, viðmið fyrir aðra útselda þjónustu
Næringarráðgjafi klst. í dagvinnu - 13.325 kr.
Húsumsjónarmaður klst. í dagvinnu - 10.400 kr.
Húsumsjónarmaður klst. í yfirvinnu - 18.400 kr.
Sérfræðingur í UT þjónustu klst. í dagvinnu - 16.100 kr.
Þjónustugjald ritara klst. í dagvinnu - 11.300 kr.
Móttökuritari klst. í dagvinnu - 8.920 kr.
Sjúkraliði klst. í dagvinnu - 10.500 kr.
Hjúkrunarfræðingur klst. í dagvinnu - 12.990 kr.
Kennsla f. I - 28.700 kr. klst
Kennsla f. II - 37.000 kr. klst
Gagnaöflun og vinnsla fyrir háskólanema í grunn- og meistaranámi, pr. klst. - 3.500 kr.