Dómur um skaðabótaábyrgð íslenska ríkisins vegna brota á EES-samningnum í tengslum við greiðslur í fæðingarorlofi
23. september 2026
Í dag var kveðinn upp dómur í máli nr. 50/2025. Álitaefnið laut að því hvort íslenska ríkið bæri skaðabótaábyrgð gagnvart A vegna rangrar innleiðingar árið 2011 á reglum EES-samningsins um frjálsa för launþega og fyrirmælum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins um samræmingu almannatrygginga sem Hæstiréttur fjallaði um í dómi sínum 28. febrúar 2024 í máli nr. 24/2023. Af þessu leiddi að A fékk aðeins lágmarksgreiðslur úr fæðingarorlofi í stað þess að tekið hefði verið mið af launum fyrir sambærilegt starf og hún gegndi á viðmiðunartímabili er hún starfaði sem læknir í Danmörku. Hæstiréttur leit til þess að innlend löggjöf sem skerti réttinn til frjálsrar farar hefði staðið óbreytt árum saman, þótt réttarstaða farandlaunþega að þessu leyti hefði skýrst með framkvæmd Evrópudómstólsins, og nauðsynlegar breytingar ekki verið gerðar fyrr en á árinu 2025. Með þessari vanrækslu hefði íslenska ríkið brugðist alvarlega skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum og því gert að greiða A nánar tilgreinda fjárhæð í skaðabætur.