Hlutverk
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) tók til starfa 1. janúar 2022 og starfar samkvæmt lögum nr. 88/2021 um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.
Stofnun er óháð í störfum sínum en heyrir undir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.
Hlutverk
Styrkja undirstöður heildstæðrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga.
Bæta gæði og öryggi þjónustu í samstarfi við þjónstuaðila og notendur.
Eftirlit með því að þjónusta sé veitt í samræmi við lög og aðþjóðlega sáttmála.
Sýn
Vera mikilvægur hluti af gæða- og eftirlitskerfi opinberrar þjónustu.
Stuðla að valdeflingu og bættum lífsgæðum einstaklinga.
Stuðla að aðgengilegri og öruggri þjónstu sem kemur til móts við persónulegar þarfir hvers og eins.
Líta til þekkingar og reynslu systurstofnana.
Leggja áherslu á notkun sannreyndra mælitækja í eftirliti með þjónustu.
Markmið
Efla og samræma faglegt eftirlit með gæðum velferðarþjónustu.