Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Markaðs- og kostnaðargreiningar

Fjarskiptastofa framkvæmir markaðsgreiningar á undirmörkuðum fjarskipta. Slíkar greiningar eru gerðar á heildsölu fjarskipta, en undir heildsölu falla viðskipti þar sem fjarskiptafyrirtækin kaupa þjónustu hvert af öðru.

Þegar fjarskiptafyrirtæki kaupir þjónustu af öðru er það oft í þeim tilgangi að útvega eitthvað sem kaupandann vantar til að búa til þá þjónustu sem fyrirtækið svo selur viðskiptavinum sínum, sem oftast eru heimili og fyrirtæki.

Sala til slíkra endanotenda, þ.e. heimilanna og fyrirtækja, kallast þá smásala fjarskiptaþjónustu.

Ef eitthvert fjarskiptafyrirtæki býr yfir þjónustu sem er nauðsynleg öðrum fjarskiptafyrirtækjum svo þau geti boðið fram smásölu sína og samkeppni er ekki nægileg um þá þjónustu getur slíkt fyrirtæki verið metið með umtalsverðan markaðsstyrk hvað þessa þjónustu varðar.

Fjarskiptastofa getur sett kvaðir á fjarskiptafyrirtæki sem metið er með umtalsverðan markaðsstyrk. Kvaðirnar geta verið ein, sumar eða allar eftirfarandi:

Kvaðir á fjarskiptafyrirtæki

Til að framfylgja verðkvöðinni er bókhaldsleg aðgreining mikilvæg svo hægt sé að ákvarða sanngjörn verð, en einnig má nota líkön um kostnað í viðkomandi starfsemi eða beita samanburði við samskonar þjónustu í nálægum löndum.

Fjarskiptastofa getur farið fram á að fyrirtæki sem er undir kvöðum um verðlagningu framkvæmi kostnaðargreiningu sem sýnir fram á kostnað við þá þjónustu sem um ræðir. Kostnaðargreining fyrirtækisins er svo yfirfarin af Fjarskiptastofu.

Áður en markaðs- eða kostnaðargreiningar verða að ákvörðunum hjá Fjarskiptastofu eru drög að þeim birt opinberlega svo innlendir hagsmunaaðilar geti gert athugasemdir við þær.

Ákvarðanir Fjarskiptastofu má kæra til Úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Úrskurð þeirrar nefndar má svo kæra til dómstóla. Hagsmunaaðilar geta einnig kært ákvarðanir Fjarskiptastofu beint til dómstóla.