Fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir
Hér safnar Fjarskiptastofa saman tilkynningum um fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir sem nýst geta fjarskiptafyrirtækjum.
Samnýting framkvæmda getur t.d. verið í boði samkvæmt lögum um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta nr.125/2019, samkvæmt skilmálum í samningum fjarskiptasjóðs við sveitarfélög vegna ljósleiðaravæðingar. eða samkvæmt kvöðum sem Fjarskiptastofa hefur lagt á í kjölfar markaðsgreiningar.
Átak stjórnvalda um ljósleiðaravæðingu alls landsins
Framkvæmdaáætlanir RARIK - Sjá kortasjá
Framkvæmdaáætlanir Vegarðarinnar
Fjarskiptasjóður
Samkvæmt lögum um fjarskiptasjóð er sjóðnum ætlað að úthluta fjármagni til verkefna sem miða að uppbyggingu stofnkerfa fjarskipta, verkefna sem stuðla að öryggi og samkeppnishæfni þjóðfélagsins á sviði fjarskipta og annarra verkefna sem kveðið er á um í fjarskiptaáætlun og ætla má að ekki verði ráðist í á markaðsforsendum.Upplýsingar um fjarskiptasjóð og stöðu verkefna hans er að finna á vef sjóðsins.
