15. júlí 2026
Úthlutun á íslenskri sumargotssíld
2026
Fiskistofa hefur lokið úthlutun á 76.047 tonnum af íslenskri sumargotssíld samkvæmt reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026.
Fiskistofa mun úthluta makríl þegar reglugerð um makrílveiðar kemur út í byrjun næstu viku.
Úthlutunina má sjá á gagnasíðum Fiskistofu.

