17. apríl 2026
Umsóknarfresti fyrir strandveiðileyfi er lokið
2026
Strandveiðileyfi
Umsóknarfrestur um leyfi til strandveiða rann út í gær, 15. apríl, og alls bárust 840 umsóknir innan frestsins.
Fiskistofa hefur þegar veitt 789 leyfi og eru 51 umsóknir enn í vinnslu, í flestum tilvikum þar sem skilyrði um gilt haffærisskírteini hefur ekki verið staðfest.
Umsóknarkerfi Fiskistofu sækir upplýsingar um haffærisskírteini sjálfvirkt til Samgöngustofu, sem getur haft áhrif á afgreiðslutíma ef upplýsingar liggja ekki fyrir.
Veitt strandveiðileyfi eru aðgengileg í stafrænu pósthólfi útgerðar á Ísland.is. Þá er einnig hægt að nálgast lista yfir útgefin strandveiðileyfi á gagnasíðum Fiskistofu.

