Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

3. mars 2026

Umsókn um byggðakvóta 2025/2026 (4)

2026
Byggðakvóti
Fiskistofa

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.

Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.

Úthlutað er fyrir:

  • Hrísey

  • Mjóafjörð

Leiðbeiningar:

  • Sækja skal um byggðakvóta í gegnum umsóknagátt. Til þess að opna umsóknagáttina þarf að nota rafræn skilríki útgerðaraðila. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um.

  • Þegar sótt er um í sveitarfélagi þar sem er vinnsluskylda þarf yfirlýsing um vinnslu afla að vera undirrituð og staðfest af sveitarfélaginu og henni skilað til Fiskistofu svo úthlutun geti farið fram.

  • Niðurstaða umsóknar verður eingöngu birt í pósthólfi umsækjanda inn á

    Ísland.is

  • Umsóknafrestur er til og með 17. mars 2026.

Óski umsækjandi eftir bréfi með öðrum leiðum þarf að senda beiðni um slíkt á fiskistofa@fiskistofa.is.

Nánari upplýsingar um byggðakvóta og umsóknargátt.