27. október 2026
Reglugerðarlokun - Skollakoppur (ígulker) í Ísafjarðardjúpi og í Steingrímsfirði í Húnaflóa
2026
Lokanir veiðisvæða
Samkvæmt reglugerð um tímabundið bann við veiðum á skollakopp (ígulkerum) í Ísafjarðardjúpi og regugerð um (2.) breytingu á reglugerð um veiðar á skollakopp (ígulkerum) gilda eftirfarandi lokanir:
Ísafjarðardjúp: Veiðar á skollakoppi eru bannaðar frá og með 22. október 2026 til og með 31. ágúst 2027.
Steingrímsfjörður í Húnaflóa: Veiðar á skollakoppi eru bannaðar frá og með 28. október 2026 til og með31. ágúst 2027.
Forsendur
Hámarksafla í skollakopp (ígulkerum) í Ísafjarðardjúpi og í Steingrímsfirði í Húnaflóa hefur verið náð á fiskveiðiárinu 2026/2027.

