27. febrúar 2026
Opnað verður fyrir umsóknir um strandveiðileyfi á sunnudaginn, 1. mars
Opnað verður fyrir umsóknir um strandveiðileyfi sunnudaginn 1. mars 2026 og umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2026.
Breytt framkvæmd frá síðustu vertíð:
Eingöngu er hægt að sækja um fyrir skip sem eru með haffæri.
Eingöngu er hægt að sækja um fyrir skip sem eru skráð fiskiskip samkvæmt skipaskrá Samgöngustofu.
Ekki er hægt að breyta veiðisvæði eftir að leyfi er gefið út.
Breyting á eignarhaldi skips eða útgerðar skips frá útgáfu leyfis eða á strandveiðivertíðinni leiðir til niðurfellingar leyfis.
Nýjung í umsóknarkerfinu
Liggi ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar um eignarhald lögaðila hjá fyrirtækjaskrá verður óskað eftir gögnum um eignarhald í umsóknarferlinu. Í slíkum tilfellum getur afgreiðsla umsókna tekið 2-5 daga enda eru miklar annir hjá starfsfólki Fiskistofu í aðdraganda strandveiðivertíðar.
Allar nánari upplýsingar um skilyrði fyrir útgáfu strandveiðileyfa, tilhögun veiðanna ásamt hlekk á umsóknargátt er að finna í grein um strandveiðileyfi.

