2. október 2025
Nýtt vef veiðivottorðakerfi
Nýja veiðivottorðakerfið mun leysa eldra kerfið af hólmi frá og með 1. desember 2025.
Nýja kerfið er þegar í notkun hjá fjölmörgum aðilum þar sem það var sett í loftið fyrr á árinu fyrir þá notendur sem ekki nýta XML-innlestur við gerð vottorða.
Nú hefur kerfið verið uppfært og nú er möguleiki að tengjast við vefþjónustu til að leysa XML innlestur af hólmi. Við hvetjum því alla sem enn eru að nota eldra kerfið til að færa sig yfir í það nýja sem fyrst því eftir 1. desember verður eingöngu hægt að útbúa vottorð í nýja kerfinu og því gamla lokað.
Allar upplýsingar um innskráningu og notkun á nýja kerfinu má nálgast í grein um veiðivottorð.
Fyrir notendur með XML-innlestur
Aðilar sem nota WiseFish (SaaS Microsoft hýsing, útgáfa 26 og nýrri) geta nú útbúið og sent vottorð beint úr kerfinu til Fiskistofu í stað þess að búa til XML.
Aðrir XML notendur geta tengst vefþjónustu Fiskistofu (API) til að útbúa vottorð úr sínum kerfum.

