Fara beint í efnið

Umsókn um byggðakvóta 2023/2024 (8)

25. júní 2024

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024.

fiskistofa byggðakvoti mynd

Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024.

Úthlutað er fyrir:

  • Voga

Leiðbeiningar:

  • Sækja skal um byggðakvóta í gegnum umsóknagátt. Til þess að opna umsóknagáttina þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. 

  • Niðurstaða umsóknar verður eingöngu birt í pósthólfi umsækjanda inn á Ísland.is

    Óski umsækjandi eftir bréfi með öðrum leiðum þarf að senda beiðni um slíkt á fiskistofa@fiskistofa.is.

  • Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi og honum skilað sem fylgiskjali í umsóknagátt á sama tíma og sótt er um.

  • Umsóknafrestur er til og með 9. júlí 2024.

Nánari upplýsingar

Umsóknargátt Fiskistofu