Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sjóstangveiðimót
6. nóvember 2024
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi til að halda opinber sjóstangaveiðimóta á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Auglýst er samkvæmt reglugerð um skráningu afla á opinberum sjóstangveiðimótum.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember nk. og senda á umsóknir ásamt fylgigögnum á netfangið fiskistofa@fiskistofa.is
Fylgigögn með umsókn:
samþykktir félagsins
upplýsingar um reglur um félagsaðild.
Umsókn telst einungis móttekin ef sjálfvirk staðfesting Fiskistofu á móttökunni hefur borist sendandanum.