Ný reglugerð um stafræna skráningu og skil aflaupplýsinga
29. mars 2023
Matvælaráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um stafræna skráningu og skil aflaupplýsinga. - uppfærð frétt 17. apríl.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6VggvIf44MHo3tS9trmFbp/dccebecce7378cac9f342ad7f18f14c9/net_hendur.png?w=50&fm=webp&q=80)
![net hendur](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6VggvIf44MHo3tS9trmFbp/dccebecce7378cac9f342ad7f18f14c9/net_hendur.png?w=774&fm=webp&q=80)
Samkvæmt reglugerðinni er skylda að skila aflaupplýsingum með stafrænum hætti í vefþjónustu Fiskistofu. Ekki verður því lengur hægt að skila inn aflaupplýsingum á eyðublöðum eða undirrituðum á pappír til Fiskistofu frá og með 1. Apríl næstkomandi.
Fiskistofa vonar að skipstjórar taki vel í þessa breytingu og bendir á eftirfarandi aðila sem bjóða upp á þjónustu til að skrá afla:
Ýmsar gagnlegar upplýsingar um skil á aflaupplýsingum er svo hægt að nálgast í grein um afladagbækur.