Dögum í grásleppu fjölgað í 55
22. apríl 2024
Fiskistofa mun samkvæmt reglugerð fjölga dögum hjá þeim skipum sem eru á grásleppuveiðum eða eiga eftir að fara á grásleppuveiðar.
Ráðuneytið hefur gefið út reglugerð sem tekur gildi í dag mánudaginn 22. apríl, þar sem veiðidögum í grásleppu er fjölgað úr 40 í 55.
Nánari upplýsingar um tilhögun veiðanna má finna hér á síðunni í grein um grásleppuveiðar.