Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Jóhannes Rúnar Jóhannsson skipaður dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur

27. febrúar 2026

Skipun dómstjóra

Dómstólasýslan hefur skipað Jóhannes Rúnar Jóhannsson í embætti dómstjóra við Héraðsdóm Reykjavíkur til næstu fimm ára frá og með 10. febrúar síðastliðnum.

Skipunin er samkvæmt tillögu kjörstjórnar dómstólsins, sem lagði hana fram fyrir hönd dómara sem skipaðir eru og eiga fast sæti við dómstólinn.

Kjörfundur var haldinn í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 6. febrúar síðastliðinn þar sem kosið var um nýjan dómstjóra í kjölfar þess að Ingibjörg Þorsteinsdóttir lét af störfum við dómstólinn vegna skipunar hennar í embætti dómara við Landsrétt.