Fara beint í efnið
Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Dómari við Mannréttindadómstól Evrópu heimsækir Hæstarétt

18. desember 2023

Í liðinni viku heimsótti Hæstarétt Oddný Mjöll Arnardóttir, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, og átti fund með dómurum og starfsmönnum réttarins.

Dómstólasýslan: Oddný Mjöll Arnardóttir heimsækir Hæstarétt

Hún ræddi um starfsemi dómstólsins og gerði grein fyrir hve mörg mál frá Íslandi væru þar til meðferðar og hvernig þau skiptust eftir málaflokkum. Einnig svaraði hún fyrirspurnum og lýsti starfi sínu sem dómari við dómstólinn.